Back to search

University of Iceland

Næringar- og offitumeðferð á Reykjalundi

Abstract

dc:description.abstract

Offita hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og er orðinn einn alvarlegasti heilsufarsvandi sem við stöndum frammi fyrir. Áætlað er að á Íslandi séu um 22,7% karla og 19,3% kvenna offeit. Aukinni þörf á úrræðum fyrir fólk sem misst hefur tökin á aukakílóunum og getur ekki misst þau hjálparlaust hefur verið mætt með næringar- og offitusviði á Reykjalundi. Markmið: Markmiðið með þessari rannsókn er að lýsa líkamssamsetningu, blóðgildum og geðheilsu alvarlega offeitra sjúklinga útfrá upplýsingum sem fengust úr forskoðun á næringar- og offitusviði Reykjalunds. Einnig að kanna flæði og fjölda sjúklinga á mismunandi stigum meðferðarinnar. Aðferð: Rannsóknin er unnin útfrá forskoðunarupplýsingum sem fengust úr sjúkraskrá á Reykjalundi um sjúklinga sem sótt höfðu offitumeðferð á tímabilinu febrúar til október 2007. Í forskoðun voru gerðar líkamsmælingar, blóðmælingar og kvíði og þunglyndi metið með spurningalistum. Upplýsingum fyrir 103 einstaklinga var safnað, konur voru 70,9% og karlar 29,1%, meðalaldur þátttakenda var 40,7 ár. Niðurstöður: Líkamsþyngdarstuðull sjúklinga var að meðaltali 44kg/m2. Miðgildi blóðsökks mældist yfir viðmiðunargildum bæði hjá körlum og konum. Meirihluti sjúklinga var með vægt þunglyndi og vægan kvíða. Blóðþrýstingslyf voru tekin af 40,6% sjúklinga og var miðgildi blóðþrýstings hjá körlum 140/95 mmHg, miðgildi kvenna var 125/85 mmHg. Brottfall frá forskoðun til dagdeildarmeðferðar var 49,5%. Ályktun: Kanna þarf betur ástæður þess af hverju sjúklingar hætta meðferð og hvort forskoðunarupplýsingar hafi forspárgildi á langtímaárangur offitumeðferðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árni Gunnarsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11870
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11870

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Árni Gunnarsson 1986-. Næringar- og offitumeðferð á Reykjalundi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11870