Back to search

University of Iceland

Proactive support of labor. The challenge of normal childbirth. Meðferðin, áhrif, árangur

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið er fræðileg úttekt á meðferðinni „Proactive support of labour – The challenge of normal childbirth“ (PSL) með það að leiðarljósi að skoða áhrif meðferðar og árangur í fæðingum á sjúkrahúsi höfunda í Hollandi. Úttektin fólst einnig í því að skoða þætti sem tengjast þessari meðferð sem og nýlegar rannsóknir. Til samanburðar voru fengnar upplýsingar um hvernig meðferðin hefur virkað á fæðingardeildinni við háskólasjúkrahúsið í Osló. Heimilda var að mestu aflað í gegnum gagnasöfnin Pub-Med, Chinal og Google Scholar. Fræðimennirnir að baki PSL vilja sporna við aukinni sjúkdómsvæðingu í fæðingum sem og hækkandi tíðni keisaraskurða. Þeir vilja efla jákvæða upplifun konu af fæðingu sinni með því að veita einstaklingshæfða þjónustu, ásamt því að efla góða samvinnu ljósmæðra og lækna á hverjum stað fyrir sig. Verklag PSL hefur reynst vel og virðist lækka töluvert tíðni keisaraskurða, bæði á fæðingardeild höfunda og í Osló. Þá virðist meðferðin stuðla að minni notkun utanbastsdeyfinga og konur tjá góða upplifun af fæðingunni. Í ljósi þessa væri áhugavert að reyna PSL meðferðina hérlendis í þeim tilgangi að lækka tíðni keisaraskurða og ekki síður til að fækka utanbastsdeyfingum sem eru margfalt algengari hérlendis en á sjúkrahúsi höfunda. Lykilorð: frumbyrja, langdregin fæðing, Syntocinon® örvun, stuðningur ljósmóður, inngrip í fæðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Ásta Gísladóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11809
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11809

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Ásta Gísladóttir 1982-. Proactive support of labor. The challenge of normal childbirth. Meðferðin, áhrif, árangur. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11809