Back to search

University of Iceland

Ljósmyndadagar

Abstract

dc:description.abstract

Ljósmyndadagar voru haldnir 9. – 12. febrúar 2012 á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Félags íslenskra samtímaljósmyndara (FÍSL). Á Ljósmyndadögum var fjölbreytt dagskrá sem spannaði fjóra daga í febrúarmánuði. Sögulegar og samtímaljósmyndasýningar voru settar upp víðsvegar um borgina, ljósmyndarýni var skipulögð, farið var í ljósmyndagöngur og ljósmyndagreining var haldin. Hvert er gildi þess að halda Ljósmyndadaga í Reykjavík? Hvers konar áhrif hefur ljósmyndatengdur viðburður eins og Ljósmyndadagar á ljósmyndalandslagið hér á landi? Reynt var að höfða bæði til almennings, áhugafólks og atvinnuljósmyndara með fjölbreyttri dagskrá á Ljósmyndadögum. Ljósmyndarýni (e. portfolio review) var haldin í fyrsta skipti á Íslandi fyrir íslenska ljósmyndara. Erlendum ljósmyndafræðingum var boðið til landsins til að kynnast íslenskri samtímaljósmyndun. Viðburðurinn átti bæði að kynna íslenska ljósmyndara og samtímaljósmyndamenningu fyrir umheiminum og skapa ný tækifæri fyrir íslenska ljósmyndara erlendis. Ljósmyndasýning frá ljósmyndahátíðinni Voies Off í Arles í Frakklandi var sett upp og íslensk samtímaljósmyndasýning. Með því var myndað samband við erlenda ljósmyndahátíð sem var að einhverju leyti fyrirmynd Ljósmyndadaga. Sögulegar ljósmyndasýningar voru settar upp sem áttu að höfða bæði til almennings og þeirra sem stunda ljósmyndun. Ljósmyndagöngur fóru fram í fimm hverfum Reykjavíkurborgar. Þær áttu að höfða til almennings þar sem fjallað var um sögu og uppbyggingu hverfana. Efnt var til ljósmyndasamkeppni fyrir áhugasama og ljósmyndagreining var haldin á Þjóðminjasafni Íslands þar sem gestum gafst kostur á að koma með eldri ljósmyndir og fá greiningu á þeim.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svava Lóa Stefánsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11768
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11768

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svava Lóa Stefánsdóttir 1983-. Ljósmyndadagar. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11768