Abstract
dc:description.abstractVinnustaðamenning er kjarni allrar starfsemi skipulagsheilda og hefur áhrif á frammistöðu þeirra. Í gegnum samskipti á vinnustað mynda undirliggjandi hugmyndir og skoðanir starfsfólks þennan kjarna. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vinnustaðamenningu Háaleitisskóla og mæla hvort munur væri á henni milli starfsstöðva skólans. Einnig var kannað hvert viðhorf starfsmanna væri til frammistöðu skólans og samanburður gerður á milli starfsstöðva hans. Spurningakönnun var lögð fyrir starfsfólk Háaleitisskóla sem byggir á spurningalista Denison. Spurningalistanum er ætlað að mæla undirliggjandi skoðanir og viðhorf sem að liggja til grundvallar fjórum menningarvíddum; þátttöku, samræmi, aðlögunarhæfni og markmiði. Einnig mælir hann áhrif vinnustaðamenningar og þá þætti hennar sem tengjast frammistöðu í samanburði við aðrar skipulagsheildir. Rannsóknir hafa sýnt að menningarvíddirnar hafa talsverð áhrif á frammistöðu skipulagsheilda. Niðurstöður sýna að helsti styrkleikinn sem einkennir vinnustaðamenningu Háaleitisskóla er það góða samkomulag sem ríkir á meðal starfsmanna skólans. Sá veikleiki sem helst einkennir vinnustaðamenningu skólans er andstaða starfsmanna við breytingar. Miklu munar á framtíðarsýn starfsmanna starfsstöðvanna, við Álftamýri er hún ekki skýr en við Stóragerði er hún mjög óskýr. Einnig er áberandi munur á milli starfsstöðvanna á samvinnu starfsmanna, hún er góð í starfsstöðinni við Álftamýri en hins vegar er hún það ekki í starfsstöðinni við Stóragerði. Af þeim árangursþáttum sem starfsfólk skólans lögðu mat á mældust tengsl á milli menningarvíddanna og gæða stjórnunar og stoðþjónustu og ánægju nemenda og starfsfólks, en starfsfólki fannst minnst til gæða stjórnunar og stoðþjónustu skólans koma. Niðurstöður benda því til þess að tengsl séu á milli vinnustaðamenningar Háaleitisskóla og frammistöðu hans. Helstu takmarkanir á rannsókninni voru þær að fullyrðingar og spurningar voru lokaðar, því gátu þátttakendur ekki komið öðrum skoðunum sínum á framfæri. Einnig hefur huglægt mat þátttakenda og upplifun þeirra á þeim þáttum sem mældir voru, hugsanlega haft áhrif á niðurstöður. Þrátt fyrir þessar takmarkanir gefur rannsóknin góða mynd af vinnustaðamenningu Háaleitisskóla. Lykilorð:Viðskiptafræði, Háaleitisskóli, Vinnustaðamenning, Denison spurningalistinn
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sif Cortes 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/11272
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/11272