University of Iceland
"Ekki eins og tímar þar sem kennarinn er æðri" : þróunarverkefni um samstarf skóla og félagsmiðstöðvar í lífsleiknikennslu
Abstract
dc:description.abstractMeistaraprófsritgerð þessi fjallar um þróunarverkefni sem byggðist á samstarfi skóla og félagsmiðstöðvar um kennslu lífsleikni á unglingastigi grunnskóla. Verkefnið var unnið veturinn 2010 til 2011. Markmið verkefnisins var að kanna hvort og þá hvernig skóli og félagsmiðstöð geti átt samstarf um lífsleiknikennslu og athuga hvað nemendum sjálfum finnst um slíkt samstarf. Höfundur ritgerðarinnar kom til starfa í skólastofnun sem starfsmaður í félagsmiðstöð hverfisins og kenndi unglingum í 10. bekk lífsleikni einn vetur. Að mörgu er að hyggja þegar farið er út í slíkt samstarf. Í ritgerðinni er verkefninu lýst ásamt tilgangi þess og markmiðum, hugmyndafræðinni sem það er byggt á, framkvæmd og framvindu. Afurðin úr verkefninu er líkan um lífsleiknikennslu þar sem gengið er út frá ofangreindu samstarfi. Líkanið miðast við kennslu í einum landshluta eða borgarhluta í eitt skólaár og er kennsluáætlun sett upp fyrir nemendur í 10. bekk. Líkanið tekur mið af aðalnámskrá grunnskóla og í kennslunni er unnið með þrjú þemu; „ég“ – „ég og aðrir“ – „ég og samfélagið“. Markmið kennslunnar var að efla færni nemenda á öllum þessum sviðum. Niðurstöður úr eigindlegu mati á gögnum sem safnað var á meðan á verkefninu stóð leiða í ljós þrjú atriði sem mikilvægt er að hafa í huga; tengsl við nemendur, sveigjanleika og tengsl við umsjónarkennara nemendanna. Niðurstöður úr megindlegri spurningakönnun benda til þess að stórum hluta þátttakenda hafi þótt það jákvæð upplifun að lífsleiknikennarinn kæmi úr félagsmiðstöðinni þeirra. Þá hafi nemendurnir verið ánægðir með lífsleikninámið í 10. bekk miðað við fyrra nám í lífsleikni. Ýmsar ástæður virðast vera fyrir þessu en margir nefndu persónulegri tengsl og traust til kennara. Nýlegar íslenskar rannsóknir á meðal kennara hafa sýnt fram á að lífsleiknikennari þarf að búa yfir mörgum kostum og svo virðist sem nemendur tengi upplifun sína að miklu leyti við kennarann. Undanfarin ár virðist áhugi fræðasamfélagsins á lífsleikni sem námsgrein hafa aukist. Hins vegar virðist þróunarvinna sem tengist námsgreininni ekki hafa fylgt þeim áhuga og rannsóknum nægilega eftir og var megintilgangur þessa verkefnis framlag til þeirrar vinnu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Svandís Þorvaldsdóttir
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10932
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10932