Back to search

University of Iceland

Álagið var gríðarlegt : val foreldra á kennsluaðferð fyrir börn á einhverfurófi í leikskólum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu foreldra þegar kemur að vali á kennsluaðferð í leikskóla fyrir börn á einhverfurófi. Skoðað var í hverju stuðningur og ráðgjöf við valið var fólgin. Að auki var skoðað hvernig eftirfylgni og ráðgjöf var háttað eftir að kennsluaðferð var valin. Við vinnu rannsóknarinnar var notuð eigindleg rannsóknaraðferð þar sem hálf- opnum viðtölum var beitt. Viðtöl voru tekin við níu einstaklinga, foreldra fimm barna sem unnu eftir kennsluaðferðunum Skipulögð kennsla og Atferlisþjálfun, tvo ráðgjafa frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sem veita ráðgjöf vegna beggja aðferðanna og tvo sérkennsluráðgjafa sveitar¬félaga sem veita ráðgjöf úti í leikskólum í sitt hvoru bæjarfélaginu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að til viðbótar við þá erfiðleika sem fylgja því að eiga barn á einhverfurófi, voru aðrir þættir íþyngjandi. Foreldrarnir voru ósáttir við biðtíma á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, fannst erfitt að velja kennsluaðferð og hefðu viljað fá meiri ráðgjöf við það val. Foreldrum fannst einnig lítil ráðgjöf vera veitt eftir að búið var að velja kennsluaðferð og byrjað var að vinna með börnunum í leikskólunum. Ráðgjafarnir töldu sig þó veita góða ráðgjöf og gera það sem þeir gætu fyrir foreldra. Niðurstöðurnar benda því til þess að endurskoða þurfi þá ráðgjöf sem foreldrum er veitt þegar börn greinast á einhverfurófi. Rannsakandi vonast til að hægt sé að draga lærdóm af þessum niðurstöðum. Að fagfólk, bæði á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og í sveitar¬félögunum geti nýtt sér niðurstöðurnar, séð það misræmi sem gætir í upplifun þeirra og foreldranna til að hægt sé að brúa það bil með einhverjum hætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Kristín Guðmundsdóttir 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10915
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10915

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Kristín Guðmundsdóttir 1959-. Álagið var gríðarlegt : val foreldra á kennsluaðferð fyrir börn á einhverfurófi í leikskólum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10915