Back to search

University of Iceland

Hvað þarf til að skila góðri frammistöðu í starfi? Öfl sem knýja einstaklinginn áfram til árangurs og velgengni

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur ritgerðarinnar er að leita svara við spurningunum: Hvað er vel unnið starf (e. good work?) – er til algild skilgreining á því? Hvert er markmiðið með starfi okkar og hver er tilgangur þess? Hvaða drífandi öfl knýja okkur áfram og leiða okkur á toppinn til framúrskarandi árangurs og velgengni í starfi? Rýnt er í fræðilegar heimildir og kenningar síðasta áratugar og jafnframt kynnt þau tól og tæki sem notast er við til að skilgreina þætti sem hafa áhrif á framúrskarandi árangur óháð starfsstéttum. Markmið rannsóknarinnar er að kanna með eigindlegri viðtalsaðferð hvort hægt er að koma auga á þá lykilþætti sem taldir eru upp í fræðilega kaflanum árangursríka einstaklinga sem hafa hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framisstöðu við að skila góðu starfi (e. good work). Til að leita svara við síðari spurningunni voru tekin viðtöl við tiú einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa hlotið einhvers konar viðurkenninga á sínum starfsvettvangi fyrir vel unnið starf. Leitast er við að fá góða innsýn í það krefjandi ferli sem átti sér stað til að ná slíkum árangri. Síðan eru birtar niðurstöður og reynt að koma auga á, og ályktanir dregnar af því, hvort um sé að ræða keimlíkt mynstur í hugsunarhætti og hegðun í starfi. Ráðandi gildi í svörum viðmælenda eru borin saman við kenningar og leitast er við að sjá sameiginlega grundvallarþætti með því að gera samanburð. Jafnframt er ætlunin að draga lærdóm af þeim reynslubanka sem er að finna í svörum viðmælenda og gera tilraun til að setja saman leiðarvísi að þeim aðalatriðum sem hafa skipað stærstan sess í þeirra ferðalagi; ferðalagi sem einkennist af því að vinna af ástríðu. Niðurstöðurnar benda til þess að viðmælendur nái góðri frammistöðu sem byggist á siðferðislegum innri gildum þeirra, settum markmiðum og þrá eftir að finna sinn æðri tilgang. Fræðileg yfirferð bendir til mikillar samsvörunar á milli viðmælenda þegar kemur að þeim eiginleikum sem þurfa að vera fyrir hendi til að geta skilað góðu verki. Lykilorð: starf, gildi, frammistaða, tilgangur, hvatar og flæði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Lísa Sólonsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10429
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10429

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Lísa Sólonsdóttir 1980-. Hvað þarf til að skila góðri frammistöðu í starfi? Öfl sem knýja einstaklinginn áfram til árangurs og velgengni. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10429