Back to search

University of Iceland

Máttur tungumála og þýðinga fyrir frumbyggjasamfélög Gvatemala. Umfjöllun um íslenska frumþýðingu á frásögn indíánakonunnar Rigobertu Menchú: Ég heiti Rigoberta Menchú og svona varð sjálfsvitund mín til

Abstract

dc:description.abstract

Í fyrri hluta þessa verkefnis, sem unnið er til fullnustu M.A. gráðu í þýðingafræðum frá Háskóla Íslands, er að finna fræðilega umfjöllun og greiningu á mætti tungumála og þýðinga fyrir frumbyggjasamfélög Mið-Ameríku-ríkisins Gvatemala. Í síðari hluta þess birtist íslensk frumþýðing á völdum köflum úr frásögn gvatemölsku indíánakonunnar Rigobertu Menchú sem ber titilinn: Ég heiti Rigoberta Menchú og svona varð sjálfsvitund mín til.. Þar segir hún frá lífi sínu og uppvexti, hugmyndaheimi Maya-indíána og ýmsum siðum og venjum ættbálks síns. Enn fremur segir hún frá blóðugum átökum milli hersins og skæruliða í heimalandi sínu á tímum borgarastríðsins sem geisaði á síðustu öld og illri meðferð yfirvalda á frumbyggjum landsins. Í verkefninu er rannsakað hvert vægi útbreiddra tungumála eins og spænsku og ensku er fyrir útbreiðslu frásagna á borð við Rigobertu, þ.e. svokallaðra „vitnisburðafrásagna“ (sp. testimonios), sem á tímum borgarastríðsins urðu mikilvægur upplýsingamiðill um hörmungar stríðsins. Rökstutt er hvernig tungumálaþekking og þýðingar skipuðu veigamikinn sess í að koma frásögn hennar á framfæri og skiptu sköpum um að hún og málstaður hennar hlaut áheyrn á alþjóðavettvangi. Í Gvatemala er máttur spænskrar tungu gagnvart hinum fjölmörgu indíánamálum sem töluð eru í landinu merkisberi um yfirráð og vald spænskunnar sem rekja má aftur til nýlendustofnunar spænskra landvinningamanna á 15. öld. Þessi yfirráð hafa varðveist fram á okkar daga og bera vitni um áberandi aðskilnað sem ríkir milli ólíkra þjóðarbrota í landinu. Spænskan er eina opinbera tungumálið í Gvatemala og er því í yfirburðastöðu þrátt fyrir að helmingur landsmanna hafi hana ekki að móðurmáli. Þýðingar á frásögn Rigobertu eru rannsakaðar samkvæmt fyrirliggjandi kenningum um þýðingar verka frá framandi menningarheimum og tungumálum. Eins og útskýrt er í fræðilega hluta verksins eru þýðingar á slíkum verkum gjarnan torveldar og stjórnast af getu og efnistökum þýðandans og hvernig hann ákveður að endurspegla hina framandi menningu. Færð eru rök fyrir því að á tímum aukinna samskipta og blöndunar menningarheima hljóti rödd jaðarhópa líkt og frumbyggja í Gvatemala aukna áheyrn og athygli fyrir tilstuðlan útbreiddra alheimsmála og þýðinga yfir á slík mál.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Elísa Eggertsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10080
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10080

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Elísa Eggertsdóttir 1984-. Máttur tungumála og þýðinga fyrir frumbyggjasamfélög Gvatemala. Umfjöllun um íslenska frumþýðingu á frásögn indíánakonunnar Rigobertu Menchú: Ég heiti Rigoberta Menchú og svona varð sjálfsvitund mín til. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10080