Back to search

Reykjavík University

Gervigreind í þjónustustörfum : áhrif gervigreindar á starfsánægju og starfsöryggi í þjónustustörfum

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um áhrif gervigreindar á starfsánægju og starfsöryggi starfsfólks í þjónustustörfum á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig starfsfólk upplifir innleiðingu gervigreindar í starfi sínu. Ritgerðin hefst á fræðilegri umfjöllun um gervigreind í atvinnulífinu, þróun hennar og hugtök sem tengjast starfsánægju og starfsöryggi. Notast var við megindlega aðferðafræði og var rafræn spurningakönnun lögð fyrir starfsfólk í þjónustufyrirtækjum á Íslandi. Niðurstöður sýndu að íslenskt starfsfólk lítur almennt jákvætt á gervigreind í starfi sínu og að sterk jákvæð fylgni er á milli notkunar gervigreindar í starfi og starfsánægju. Niðurstöður sýndu að íslenskt starfsfólk lítur almennt jákvætt á innleiðingu gervigreindar í sínu starfi og sterk jákvæð fylgni var á milli notkunar gervigreindar í starfi og starfsánægju. Einnig voru skoðuð áhrif gervigreindar á upplifun starfsfólks varðandi starfsöryggi en engin marktæk fylgni fannst þar á milli. Niðurstöðurnar benda til þess að gervigreind sé fremur að styðja við starfsfólk í þjónustustörfum í stað þess að ógna því. Þetta getur nýst stjórnendum og fyrirtækjum við ákvarðanir er varða innleiðingu á slíkri tækni sem gervigreindin er.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Halldór Atli Kristjánsson 2003-
  • Óskar Hákonarson 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53661
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53661

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Atli Kristjánsson 2003-; Óskar Hákonarson 2003-. Gervigreind í þjónustustörfum : áhrif gervigreindar á starfsánægju og starfsöryggi í þjónustustörfum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53661