Reykjavík University
Notkun á gervigreind í íslenskri stjórnsýslu : notkun á gervigreind í íslenskri stjórnsýslu í samræmi við gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins nr. 2024/1689
Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið með þessari rannsókn er að komast að því hversu langt stjórnvöldum er heimilt að ganga í notkun á gervigreind við úrvinnslu stjórnsýslumála. Þar sem gervigreind er tiltölulega ný tækni er farið yfir þann grunn sem liggur að baki tækninni. Með því er veitt innsýn inn í tækniheim gervigreindarinnar og leitast við að auðvelda lesandanum að átta sig á gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins nr. 2024/1689 (gervigreindarreglugerðinni). Þá er í rannsókninni farið yfir helstu reglur gervigreindarreglugerðarinnar sem geta snert stjórnvöld, svo sem reglur um bönnuð gervigreindarkerfi, skyldur á aðila sem nota hááhættukerfi og skyldur sem hvíla á hááhættukerfunum sjálfum. Einnig er fjallað um gervigreindarkerfi og notkun sem ekki fellur undir reglur um hááhættukerfi. Þá er jafnframt fjallað um almenn gervigreindarlíkön (e. GPAI) og þær skyldur sem falla á veitendur og í sumum tilfellum innleiðendur slíkra likana. Í rannsókninni er gervigreindarreglugerðin sett í samhengi íslenskra stjórnvalda og það lagaumhverfi sem ríkir þar. Er það gert í formi leiðbeininga til stjórnvalda um hverju það þarf að huga að við innleiðingu, þróun og notkun gervigreindarkerfis innan stjórnsýslunnar og sérstaklega er lögð áhersla á notkun gervigreindar við úrvinnslu stjórnsýslumála. Þá er farið yfir þær skyldur sem fylgja notkun stjórnvalds á gervigreind, bæði út frá gervigreindarreglugerðinni og íslenskum réttarreglum. Þá er stjórnvöldum veittar leiðbeiningar um hvernig þau geti staðsett sig rétt innan gervigreindarreglugerðarinnar. Þá leitast rannsóknin við að útskýra hvernig gervigreindarreglugerðin samræmist stjórnsýslulögum og hvernig birtingarmynd gagnsæis í reglugerðinni getur haft áhrif á notkun stjórnvalda á gervigreindarkerfi. Að lokum er fjallað um vægi CE-merkingar og samræmismat fyrir stjórnvöld og hugsanlegar breytingar á gervigreindarreglugerðinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Róbert Orri Pétursson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53644
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53644