Back to search

Reykjavík University

Ákvörðun refsingar í málum sem varða tilraun til manndráps : rannsókn á dómum Hæstaréttar og Landsréttar frá árinu 2010 til ársins 2026

Abstract

dc:description.abstract

Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar var að rannsaka þá þætti sem hafa áhrif á ákvörðun refsingar í málum sem varða tilraun til manndráps. Farið verður yfir ákvæði 211. gr. alm. hgl. og 20. gr. sömu laga. Gerð verður grein fyrir sögu, einkennum og refsiramma ákvæðanna til að gera grein fyrir hvaða skilyrði þarf að uppfylla svo heimilt sé að sakfella fyrir brot gegn 211. gr., sbr. 20. gr. alm. hgl. Gerð er dómarannsókn á dómum Hæstaréttar og Landsréttar sem fallið hafa frá árinu 2010 til ársins 2026. Á rannsóknartímabilinu féllu 31 dómur þar sem sakfellt var fyrir tilraun til manndráps. Í rannsókninni var farið yfir ákvæði VIII. kafla alm. hgl. sem fjallar um þau atriði sem hafa áhrif á refsihæðina með það að markmiði að greina til hvaða ákvæða dómarar litu við ákvörðun refsingar. Sýndi dómarannsóknin að allra helst var vikið að ákvæðum 70. gr. alm. hgl. Niðurstaðan var sú að ýmis atriði koma þar til skoðunar en allra helst má ætla að dómarar líti til þeirrar aðferðar sem verknaðurinn var unninn með. Þá sýndi rannsóknin að við ákvörðun refsingar virðist aðferðin, og sú hætta sem aðferðinni fylgir, vega þyngra en það líkamlega tjón sem raunverulega hlaust af atlögunni. Vakti það jafnframt athygli hversu oft dómarar rökstyðja ekki niðurstöðu sína né vísa til þeirra ákvæða sem litið var til við ákvörðun refsingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórhalla Ylfa Gísladóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53637
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53637

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórhalla Ylfa Gísladóttir 2000-. Ákvörðun refsingar í málum sem varða tilraun til manndráps : rannsókn á dómum Hæstaréttar og Landsréttar frá árinu 2010 til ársins 2026. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53637