Back to search

Reykjavík University

Hreyfifjör : leikrænt hreyfispil til að efla hreyfingu og hreyfiþroska leikskólabarna

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur verkefnisins er að þróa og gefa út leikrænt og aðgengilegt hreyfispil fyrir börn á leikskólaaldri sem nýtist í daglegu leikskólastarfi. Verkefnið byggir á fræðilegri umfjöllun um mikilvægi hreyfingar barna og áhrif hennar á heilsu, þroska og nám þeirra. Þar sem leikur er talinn helsta námsleið barna á þessum aldri er fjallað um hlutverk leikskóla og starfsfólks í að skapa hvetjandi aðstæður sem styðja við daglega hreyfivirkni barna í gegnum leik og fjölbreytt verkefni. Markmið verkefnisins er að gefa út hreyfispil fyrir börn á aldrinum 3-6 ára sem styður við hreyfiþroska þeirra á markvissan og fjölbreyttan hátt. Lögð er áhersla á að spilið sé einfalt í notkun, krefjist ekki sérstakra áhalda og nýtist við fjölbreyttar aðstæður í daglegu leikskólastarfi. Einnig er markmiðið að spilið nýtist öllu starfsfólki leikskóla óháð menntun og reynslu og auðveldi samþættingu hreyfingar og leiks í starfi með börnum. Ávinningur: Vonast er til að hreyfispilið skapi aukin tækifæri til daglegrar hreyfingar í leikskólastarfi á skemmtilegan og markvissan hátt. Einnig er vonast til að spilið stuðli að bættri hreyfifærni, aukinni líkamsvitund og meiri þátttöku barna í hreyfingu sem getur haft jákvæð áhrif á líkamlegan, félagslegan og andlegan þroska þeirra. Fyrir starfsfólk leikskóla getur spilið nýst sem aðgengilegt stuðningstæki sem auðveldar samþættingu hreyfingar og leiks í daglegu starfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Harpa Hlynsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53593
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53593

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Harpa Hlynsdóttir 2003-. Hreyfifjör : leikrænt hreyfispil til að efla hreyfingu og hreyfiþroska leikskólabarna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53593