Back to search

Reykjavík University

Áhrif koffínneyslu á svefn afrekskvenna í knattspyrnu á Íslandi : með áherslu á svefnlengd og svefngæði

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort magn og tímasetning koffíns hafi áhrif á svefnlengd og svefngæði afrekskvenna í knattspyrnu á Íslandi. Þátttakendur voru 31 knattspyrnukona (meðalaldur 22,6 ± 4,0 ár) úr Bestu deild og 1. deild kvenna í knattspyrnu á Íslandi. Rannsóknin var megindleg þversniðsrannsókn þar sem þátttakendur svöruðu spurningalista um koffínneyslu, svefnlengd og svefngæði. Tölfræðileg greining var gerð með Spearman-raðfylgniprófi og Mann-Whitney U-prófi. Helstu niðurstöður sýndu að koffínneysla meðal þátttakenda var almennt lág eða að meðaltali 0.77 ± 0.88 drykkir á dag og 90.3% neyttu ekkert koffíns eftir klukkan 18:00. Þátttakendur sváfu að meðaltali 7 klukkustundir og 57 mínútur á virkum dögum og 8 klukkustundir og 18 mínútur um helgar, en tæplega 40% þátttakenda upplifðu hvorki né eða slök svefngæði. Engin tölfræðilega marktæk tengsl fundust milli koffínmagns eða tímasetningar koffínneyslu og svefnlengdar (p>0.05) né svefngæða (p>0.05). Niðurstöðurnar benda til þess að við þá lágu koffínneyslu sem mælist í þessum hópi hafi koffín ekki marktæk áhrif á svefnlengd eða svefngæði, og því skýrir koffínneysla ekki slök svefngæði meðal þátttakenda. Þörf er á frekari rannsóknum með stærra úrtaki og hlutlægum svefnmælingum til að fá skýrari mynd af tengslum koffíns og svefns ásamt öðrum áhrifaþáttum hjá afrekskonum í knattspyrnu. Leitarorð: Koffín, svefngæði, svefnlengd, knattspyrna, svefnvandamál

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrund Benediktsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53587
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53587

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrund Benediktsdóttir 2001-. Áhrif koffínneyslu á svefn afrekskvenna í knattspyrnu á Íslandi : með áherslu á svefnlengd og svefngæði. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53587