Reykjavík University
Virkni eldri borgara : hvatar til áframhaldandi þátttöku í skipulagðri þjálfun
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á áframhaldandi þátttöku eldri borgara í skipulagðri þjálfun. Sérstök áhersla var lögð á að skoða upplifun iðkenda af þátttöku í þjálfun hjá Virkni og Vellíðan í Kópavogi, þar á meðal hvaða ávinning þeir telja sig fá og hvaða þættir hafa áhrif á áframhaldandi þátttöku. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við tíu eldri borgara sem taka þátt í skipulagðri þjálfun. Viðtölin voru tekin upp á síma og studdust við hálfstaðlaðan spurningalista sem innihélt 22 opnar spurningar. Markmiðið var að fá dýpri innsýn í reynslu, viðhorf og hvata þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áframhaldandi þátttaka í skipulagðri þjálfun sé margþætt, þar sem félagslegir, líkamlegir og andlegir þættir fléttast saman. Félagsleg tengsl og gott samfélag reyndust hafa mest áhrif á áframhaldandi þátttöku þátttakenda, ásamt jákvæðri upplifun af líkamlegum og andlegum ávinningi þjálfunarinnar. Þátttakendur lýstu meðal annars auknu sjálfstæði, bættri líðan, meiri orku og aukinni félagslegri virkni í tengslum við reglulega þátttöku í þjálfun. Álykta má að félagslegt umhverfi, innri hvatar og upplifun eldri borgara af ávinningi hreyfingar séu lykilþættir í áframhaldandi þátttöku í skipulagðri þjálfun. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að skipulögð þjálfun geti gegnt mikilvægu hlutverki í farsælli öldrun með því að stuðla að auknum lífsgæðum, reglufestu og félagslegri virkni eldri borgara.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Haukur Leifur Eiríksson 2002-
- Gísli Martin Sigurðsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53565
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53565