Back to search

Reykjavík University

Vörudreifing Beru hf. : greining á rekstrarhagkvæmni og tækifærum til umbóta

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er vörudreifing Beru hf. í miðborg Reykjavíkur greind með tilliti til rekstrarhagkvæmni og þjónustustigs. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði og fól í sér viðtöl við stjórnendur, auk þriggja tímamælinga á vettvangi í miðbænum. Niðurstöður sýna að skilvirkni í vörudreifingu ræðst að stórum hluta af aðgengi og innviðum við vörumóttöku viðskiptavina. Meðalafköst mældust á bilinu 34,3-120,9 kg/mín eftir viðskiptavinum og fóru 42,4% af vinnutíma starfsmanna í beina afgreiðslu, það er þeim vinnutíma sem fer í að afhenda vörur og koma þeim fyrir hjá viðskiptavini. Niðurstöðurnar benda enn fremur til þess að ófullnægjandi aðgengi í miðbænum dragi verulega úr skilvirkni og auki líkur á töfum. Helstu tillögur beinast að því að endurskoða þjónustulíkan fyrirtækisins, tryggja að viðskiptasamningar endurspegli raunkostnað við afhendingu og efla samstarf um bætt aðgengi við vöruafgreiðslu í miðborginni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Grétar Óli Jónsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53432
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53432

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Grétar Óli Jónsson 1997-. Vörudreifing Beru hf. : greining á rekstrarhagkvæmni og tækifærum til umbóta. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53432