Back to search

Reykjavík University

Persónuleg skaðabótaábyrgð heilbrigðisstarfsmanna vegna líkamstjóna

Abstract

dc:description.abstract

Starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna einkennist oft af miklum hraða og krefjandi aðstæðum, en starfs síns vegna þurfa þeir oft og tíðum að taka afdrifaríkar ákvarðanir um líf og limi á svipstundu undir miklu álagi. Það liggur því í augum uppi að mikilvægt er fyrir alla heilbrigðisstarfsmenn að skýrt svar sé við þeirri spurningu, hvort og þá að hvaða skilyrðum uppfylltum þeir geti bakað sér persónulega skaðabótaábyrgð vegna líkamstjóna sem þeir kunna að valda í starfi? Meginmarkmið ritgerðarinnar er að leita svara við ofangreindri spurningu. Í því skyni er farið yfir hugsanlegan bótarétt vegna líkamstjóna á grundvelli sakarreglunnar, reglunnar um vinnuveitandaábyrgð og laga um sjúklingatryggingu. Í framhaldi af þeirri umfjöllun er sjónum að meginstefnu beint að 19., sbr. 20. og 23. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 með það fyrir augum að skoða inntak ákvæðanna og útskýra undir hvaða kringumstæðum starfsmaður getur orðið persónulega ábyrgur til greiðslu miskabóta á grundvelli þeirra. Jafnframt er stuttlega vikið að sérlögum sem ganga 23. gr. laga nr. 50/1993 framar og í framhaldi af þeirri umræðu er skoðað hvernig 19., sbr. 20. og 23. gr. laga nr. 50/1993 horfa við heilbrigðisstarfsmönnum. Að lokum er vikið að rétti til miskabóta skv. a-lið 1. mgr. og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993. Nánar tiltekið er leitast við að skera úr um hvort í þessum ákvæðum sé með beinum hætti vikið frá meginreglunni um vinnuveitandaábyrgð, þ.e. ef huglæg skilyrði sem koma fram í ákvæðunum teljast uppfyllt, þá falli tilvikið utan gildissviðs reglunnar um vinnuveitandaábyrgð og leiði til persónulegrar ábyrgðar tjónvalds. Niðurstaða ritgerðarinnar er að framangreind lagaákvæði gera ráð fyrir persónulegri ábyrgð tjónvalds og geta heilbrigðisstarfsmenn því orðið persónulega skaðabótaskyldir vegna líkamstjóna sem þeir kunna að valda í starfi. Er því talið tilefni til endurskoðunar á 26. gr. laga nr. 50/1993 til þess að tryggja að reglan um vinnuveitandaábyrgð taki ávallt til miskabótakröfunnar svo lengi sem háttsemi heilbrigðisstarfsmanns er innan gildissviðs meginreglunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Marín Jónsdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51975
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51975

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Marín Jónsdóttir 2002-. Persónuleg skaðabótaábyrgð heilbrigðisstarfsmanna vegna líkamstjóna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/51975