Back to search

Reykjavík University

Aðkoma hins opinbera að stuðnings- og fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja : yfirlit yfir lög og reglugerðir sem styðja við nýsköpun og hugmyndir að tillögum til úrbóta.

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um aðkomu hins opinbera að stuðnings- og fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja. Hið opinbera styður við nýsköpun með margvíslegum aðgerðum og stuðningi og verður umfjöllunin því afmörkuð við eftirfarandi flokka: skattaumgjörð sem styður við nýsköpun (1), stuðningur við fjárfestingarumhverfið (2) og samkeppnissjóðir (3). Leitað er svara við því hverjir helstu kostir og ókostir eru við ofangreindan stuðning, með það að markmiði að koma með tillögur til úrbóta. Rannsókn ritgerðarinnar leiðir í ljós að nýsköpunarumhverfið á Íslandi sé í heild sinni gott og að hið opinbera, sem og margir einkaaðilar og samtök, eiga mikið hrós skilið fyrir að skapa gott vistkerfi nýsköpunar. Mikilvægt er að hlúa áfram að nýsköpunarumhverfinu svo að til verði fleiri nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi og núverandi fyrirtæki sjái kosti þess að halda starfsemi sinni hérlendis. Nauðsynlegt er að viðhalda þeim öfluga stuðningi sem felst í rétti til skattfrádráttar vegna R&Þ. Skattahvatakerfi býður upp á meira jafnræði og fyrirsjáanleika, þar sem allir sem uppfylla skilyrði laganna og sækja um með réttum hætti eiga að geta nýtt sér réttindin. Endurskoða má hvort skilyrði til nýtingar á 10. gr. a. tsl. séu hugsanlega of þröng, sérstaklega til samanburðar við sambærilegt ákvæði Í Noregi. Það er ályktun höfundar að enn sé þörf á stuðningi hins opinbera í formi fjárfestingarsjóðs til að auka við framboð á áhættufjármagni og hvetja til þátttöku annarra fjárfesta. Telja má að því sé best náð með fjárfestingum í sjóðum og sérstökum mótframlagslánum. Samkeppnissjóðir gegna einnig lykilhlutverki í góðu vistkerfi nýsköpunar. Þeir geta opnað dyr á frekari fjármögnun og veitt fyrirtækjum tækifæri til að þróa hugmynd betur á þann veg að það sé tilbúið að sækja um fjármagn í stærri og umfangsmeiri samkeppnissjóðum erlendis og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, með tilheyrandi jákvæðum kostum þess.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Katrín Ingvadóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51034
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51034

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Katrín Ingvadóttir 1998-. Aðkoma hins opinbera að stuðnings- og fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja : yfirlit yfir lög og reglugerðir sem styðja við nýsköpun og hugmyndir að tillögum til úrbóta.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51034