Reykjavík University
Sönnun fullyrðinga: Sönnunarkröfur samkvæmt 4. mgr. 6. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Hugsanleg áhrif tilvonandi breytinga á ákvæðinu á íslenska framkvæmd
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð, „Sönnun fullyrðinga: Sönnunarkröfur samkvæmt 4. mgr. 6. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Hugsanleg áhrif tilvonandi breytinga á ákvæðinu á íslenska framkvæmd“, er markmiðið að svara tveimur rannsóknarspurningum. Sú fyrsta lýtur að því hvort ríkari kröfur séu gerðar til sönnunar á fullyrðingum í einhverjum tilvikum samkvæmt íslenskri framkvæmd. Farið verður yfir stig lýsingarorðs, viðfangsefni fullyrðinga, fullyrðingar sem hafa áður verið settar fram af öðrum auk þess sem skoðað verður að hverjum fullyrðing beinist. Síðara rannsóknarefnið snýr að nýju ákvæði um sönnun fullyrðinga í frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga. Leitast er við að svara því hvaða breytingar gætu orðið á framkvæmd með tilvonandi ákvæði. Til þess að svara því er nýja ákvæðið borið saman við núgildandi ákvæði með hliðsjón af lögskýringargögnum. Einnig er danskur réttur skoðaður til skýringar þar sem dönsk markaðssetningarlög hafa að geyma nær samhljóða ákvæði og hið tilvonandi ákvæði. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að í sumum tilfellum virðist sem ríkari kröfur séu gerðar til sönnunar en í öðrum. Ríkar kröfur eru gerðar til sönnunar á afdráttarlausum fullyrðingum og er það oft í tilvikum þar sem fullyrðing inniheldur efsta stigs lýsingarorð. Einnig eru gerðar ríkar kröfur til sönnunar á umhverfis- og heilsufullyrðingum. Auk þess eru gerðar ríkar kröfur til þeirra sem setja fram fullyrðingar þó svo að sama fullyrðing hafi áður verið sett fram af öðrum. Nýtt ákvæði um sönnun fullyrðinga krefst ekki sönnunar á öllum fullyrðingum og er gildissvið ákvæðisins því þrengra en 4. mgr. 6. gr. laga nr. 57/2005. Ýktar fullyrðingar eða þær sem ekki á að taka bókstaflega falla ekki undir ákvæðið. Fáar ákvarðanir Neytendastofu hafa fjallað um slíkar fullyrðingar og hefur breyting á ákvæðinu því líklegast ekki mikil áhrif á framkvæmd. Að lokum var farið yfir hvort breytingar gætu orðið á samspili lagagreina með nýju ákvæði og komist að því að samspil lagagreina verður að öllum líkindum sambærilegt því sem nú þekkist.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Nathalie Mai 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50822
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50822