Reykjavík University
Umsáturseinelti : ákvæði 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, beiting, framkvæmd og samanburður við norræna lagaframkvæmd
Abstract
dc:description.abstractUmsáturseinelti var gert refsivert á Íslandi með lögum nr. 5/2021 um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Með lögunum var nýju ákvæði 232. gr. a komið fyrir í 15 kafla. hgl. sem fjallar um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi. Frá því ákvæðið var lögfest hefur dómaframkvæmd verið að mótast. Í ritgerðinni er byrjað á að fjalla um Istanbúl-samninginn og 34. gr. samningsins um umsáturseinelti. Einnig er fjallað um tilurð og aðdraganda lagasetningarinnar. Í þriðja kafla eru helstu niðurstöður dómarannsóknar höfundar dregnar saman. Loks er fjallað um norræna dómaframkvæmd og hún borin saman við fyrstu merki íslenskrar framkvæmdar.Rannsókn höfundar bendir til þess að beiting 232. gr. a í íslenskum dómum sé að mörgu leyti sambærileg þeirri sem þekkist á Norðurlöndunum. Dómar byggja á heildstæðu mati á atvikum, sérstaklega með tilliti til endurtekningar og tímaramma. Óbein samskipti geta talist hluti af háttseminni og brot á nálgunarbanni hafa áhrif á bæði sönnun og ákvörðun refsingar.Höfundur telur að ákvæðið feli í sér réttarbót fyrir þolendur áreitni og umsáturseinelti. Hins vegar er því haldið fram að brot á nálgunarbanni ætti skýrt að falla undir verknaðarlýsingu ákvæðisins samkvæmt 232. gr. a hegningarlaga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lovísa H. Larsen 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50731
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50731