Back to search

Reykjavík University

Skattlagning peningagjafa til starfsmanna : er ríkisskattstjóra heimilt að gera greinarmun á gjöfum í skattalegu tilliti eftir formi þeirra?

Abstract

dc:description.abstract

Efni ritgerðarinnar eru valdheimildir ríkisskattstjóra til þess að gera greinarmun, í skattalegu tilliti, á gjöfum sem launagreiðendur gefa starfsmönnum sínum. Fyrir rúmum tveimur árum var orðalagi skattmatsreglna ríkisskattstjóra, sem hann setur á grundvelli 118. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, breytt á þann hátt að nú er kveðið skýrt á um reglu um form gjafa til starfsmanna. Reglan hefur staðið óbreytt í núgildandi skattmatsreglum en hún kveður á um skattskyldu allra gjafa sem launagreiðendur gefa starfsmönnum sínum og þá hvort sem gjöfin er í „beinhörðum peningum, innleggi á bankareikninga eða afhendingu á bankakortum“. Ýmis álitamál vöknuðu þegar reglan var færð inn í skattmatið (a.m.k. berum orðum) og er markmið ritgerðarinnar þríþætt. Í fyrsta lagi er leitað svara við því hvaða lágmarkskröfur lagaáskilnaðarreglur 40. gr. og 77. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 gera til skattlagningarheimilda. Í öðru lagi verður varpað ljósi á það álitamál hvort 118. gr. tekjuskattslaga feli í sér framsal skattlagningarvalds í bága við fyrrnefndar reglur stjórnarskrárinnar og í þriðja lagi hvort fyrrgreind regla skattmatsins eigi sér nægja lagastoð. Að því loknu verður vikið stuttlega að óskráðum reglum stjórnsýsluréttarins og eftirlitshlutverk fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann staðfestir reglur skattmatsins. Meðal niðurstaðna er að umrædd regla eigi sér ekki nægja lagastoð í 118. gr. og að það sé nokkrum vafa undirorpið að reglan sé í samræmi við lög. Jafnframt verður að slá varnagla við það að ríkisskattstjóri geti byggt á hugsanlegum skattasniðgöngusjónarmiðum til þess að réttlæta þann greinarmun á gjöfum til starfsmanna í skattmatsreglunum, þar sem skattyfirvöld hafa víðtækar heimildir til þess að bregðast við skattalagabrotum með öðrum hætti sem þeim ber að nota í staðinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marvin Logi Nindel Haraldsson 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50589
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50589

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marvin Logi Nindel Haraldsson 2002-. Skattlagning peningagjafa til starfsmanna : er ríkisskattstjóra heimilt að gera greinarmun á gjöfum í skattalegu tilliti eftir formi þeirra?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50589