Back to search

Reykjavík University

Skattlagning rafmynta : er þörf á lagabreytingu?

Abstract

dc:description.abstract

Skattlagning rafmynta Markmið ritgerðar þessarar er að kanna hvernig skattalegri meðferð rafmynta er háttað samkvæmt íslenskum lögum og meta hvort þörf sé á sérstökum lagabreytingum í ljósi vaxandi mikilvægis rafmynta í alþjóðlegum viðskiptum. Ritgerðin hefst á ítarlegri sögulegri yfirferð um upphaf tekjuskatts á Íslandi. Þá er farið yfir almenn ákvæði íslensks skattaréttar, þar með talið skilgreiningar á skattskyldu, mismunandi flokka skattskyldra tekna og mikilvægi aðgreiningar þeirra fyrir skattlagningu. Í meginmáli ritgerðarinnar er ítarlega fjallað um helstu einkenni rafmynta, sérstaklega Bitcoin, þar sem tæknileg uppbygging þeirra, öryggisatriði og efnahagslegir eiginleikar eru skýrðir út frá bálkakeðjutækni. Þar að auki er lögð sérstök áhersla á íslenska dómaframkvæmd, þar á meðal úrskurð yfirskattanefndar nr. 215/2021, og ákvarðandi bréf ríkisskattstjóra, sem hafa mótað skattframkvæmd á þessu sviði hérlendis. Auk þess er gerður greinargóður samanburður á skattalegri meðferð rafmynta í helstu nágrannaríkjum og Bandaríkjunum, þar sem ólík nálgun á skattlagningu rafmynta kemur fram. Höfundur kemst að þeirri niðurstöðu að skattlagning rafmynta á Íslandi byggist enn að mestu leyti á almennum ákvæðum íslenskra skattalaga án sértækrar löggjafar sem sérstaklega taki mið af eðli rafmynta. Slíkt fyrirkomulag getur skapað réttaróvissu og ósamræmi í framkvæmd. Höfundur leggur því fram tillögu um að íslensk skattalöggjöf verði aðlöguð sérstaklega að rafmyntum með því að skýra skilgreiningar og setja fram nákvæmar reglur um skattskyldu þeirra. Slík lagabreyting myndi auka skýrleika og fyrirsjáanleika skattumhverfis rafmynta á Íslandi, sem væri til hagsbóta fyrir bæði skattyfirvöld og skattgreiðendur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Róbert Daði Sigurþórsson 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50540
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50540

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Róbert Daði Sigurþórsson 2001-. Skattlagning rafmynta : er þörf á lagabreytingu?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50540