Back to search

Reykjavík University

Lagaumhverfi rafrænna undirskrifta : geta formkröfur íslenskra laga hindrað réttaráhrif rafrænna undirskrifta?“

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi ber titilinn „Lagaumhverfi rafrænna undirskrifta: Geta formkröfur íslenskra laga hindrað réttaráhrif rafrænna undirskrifta?“ Í nútímasamfélagi er í auknum mæli verið að færa undirskriftarleiðir yfir á rafrænt form þar sem þær meðal annars stuðla að þægindum, eru umhverfisvænar og með þeim er hægt að einfalda ýmsa ferla og auka sjálfvirkni hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er annars vegar að varpa ljósi á þróun íslenskrar löggjafar á sviði rafrænna undirskrifta, en hún byggir á evrópskri löggjöf. Samhliða því verður farið yfir hvernig EES-samningurinn hefur haft áhrif á íslenska löggjöf. Hins vegar verður kannað hvort réttaráhrif rafrænna undirskrifta séu þau sömu og eiginhandarundirskrifta. Samkvæmt eIDAS reglugerð Evrópusambandsins hafa verið skilgreindar þrenns konar gerðir rafrænna undirskrifta; einfaldar, útfærðar og fullgildar rafrænar undirskriftir. Reglugerðinni var ætlað að koma á þeirri meginreglu, að fullgild rafræn undirskrift hafi sömu réttaráhrif og eiginhandarundirskrift. Þrátt fyrir það má finna sums staðar í íslenskum lögum kröfu um skriflegt form löggerninga, sem gerir það ómögulegt fyrir rafræna undirskrift að hafa sömu réttaráhrif og eiginhandarundirskrift, jafnvel þó hún sé fullgild. Til þess að varpa ljósi á það hvernig fyrrgreindar formkröfur birtast í lögunum verður farið yfir fjölbreytt svið lagabálka og reynt að afmarka það hvort formkröfur þeirra feli í sér beina eða óbeina hindrun fyrir rafrænar undirskriftir. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að í íslenskum lögum má finna bæði beinar og óbeinar hindranir sem koma í veg fyrir réttaráhrif rafrænna undirskrifta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rut Pétursdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50538

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rut Pétursdóttir 2003-. Lagaumhverfi rafrænna undirskrifta : geta formkröfur íslenskra laga hindrað réttaráhrif rafrænna undirskrifta?“. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50538