Back to search

Reykjavík University

Meðábyrgð í ökutækjatjónum : mismunandi afleiðingar ólíkrar háttsemi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að greina þær réttarreglur sem gilda um skaðabætur fyrir tjón sem rekja má til notkunar ökutækja. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig háttsemi tjónþola getur haft áhrif á rétt hans til bóta, bæði samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og lögum um ökutækjatryggingar nr. 30/2019. Meginreglan samkvæmt lögunum er sú að eigandi eða umráðamaður ökutækis ber hlutlæga ábyrgð á tjóni sem hlýst af því, óháð því hvort hann hafi sýnt af sér saknæma háttsemi, sbr. 4. gr. laganna. Einnig verður fjallað um slysatryggingu ökumanns og eiganda samkvæmt 9. gr. laganna. Sú trygging veitir sjálfstæðan bótarétt, án tillits til þess hvort saknæmi eða ábyrgð annarra komi til skoðunar. Þá verður greint frá því hvernig vátryggingaskylda eigenda ökutækja og ábyrgð vátryggingafélaga tengist þessari ábyrgð, sem og hvernig heimild til endurkröfu getur komið til álita ef tjónvaldur sýnir af sér ásetning eða stórkostlegt gáleysi í tengslum við lög um vátryggingarsamninga nr. 30/2004. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig hegðun tjónþola sjálfs getur haft áhrif á rétt hans til skaðabóta. Meðal þeirra aðstæðna sem teknar eru til skoðunar eru tilvik þar sem ökumenn aka undir áhrifum áfengis, lyfja og vímuefna, sem og önnur tilvik þar sem umferðarlögum er ekki fylgt. Slík háttsemi getur haft það í för með sér að bætur til tjónþola kunni að skerðast, eða falla niður, eftir því hvort um er að ræða almennt eða stórkostlegt gáleysi, eða ásetning. Til stuðnings umfjöllunarinnar er greint frá dómaframkvæmd á Íslandi. Jafnframt er litið til þróunar og þeirra viðmiða sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu í tengslum við áhættutöku og þau áhrif sem það hafði á Ísland. Að lokum er hugað að þeim nýju áskorunum sem nútímasamfélag leggur á ábyrgðarreglur, svo sem í tengslum við notkun snjalltækja við akstur. Niðurstaðan er sú að reglurnar veiti tjónþolum víðtæka vernd þegar kemur að tjónabótum, en meðábyrgðarreglan þjónar mikilvægu jafnvægishlutverki þar sem réttur til bóta byggir ekki einvörðungu á tjóninu sjálfu, heldur einnig á hegðun og ábyrgð hvers einstaklings sem þátt á í atburðarásinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óskar Freyr Jóhannsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50535
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50535

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óskar Freyr Jóhannsson 2000-. Meðábyrgð í ökutækjatjónum : mismunandi afleiðingar ólíkrar háttsemi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50535