Back to search

Reykjavík University

Áhrif liðleika og styrks í aftanálærisvöðvum á ökklameiðsl í hópfimleikum

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort samband væri á milli styrks og liðleika í aftanálærisvöðvum og tíðni ökklameiðsla meðal hópfimleikafólks í meistaraflokki. Aðferð: Þátttakendur voru 22 hópfimleikaiðkendur (16 konur, 6 karlar) á aldrinum 18 til 34 ára úr meistaraflokki Stjörnunnar. Mældur var liðleiki í aftanálærisvöðvum með Sit-and-Reach prófi og styrkur var mældur með NordBord tæki. Gögnin voru unnin í SPSS og Excel og metin með lýsandi tölfræði og Pearson fylgnigreiningu. Niðurstöður: Marktækt jákvætt samband fannst milli styrks í aftanálærisvöðvum og fjölda snúninga á ökkla fyrir bæði vinstri (r = 0,518; p = 0,016) og hægri fót (r = 0,511; p = 0,16). Mjög sterk fylgni var á milli styrks í vinstri og hægri fæti (r = 0,954) en mjög veik ómarktæk fylgni var á milli liðleika og fjöldasnúninga á ökkla (r = 0,096; p = 0,671). Umræður: Þrátt fyrir að aukinn styrkur sé oft tengdur við minni meiðslahættu benda niðurstöður til þess að sterkari einstaklingur sé líklegri til að hafa upplifað fleiri snúninga á ökkla. Þetta gæti stafað af meiri ákefð eða krefjandi æfingum. Liðleiki samkvæmt Sit-and-Reach prófinu virðist ekki tengjast ökklameiðslum. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að leggja áherslu á hreyfistjórnun og stöðugleika samhliða styrktarþjálfun. Frekari rannsóknir með stærra úrtaki og lengri eftirfylgni eru nauðsynlegar til að skýra orsakasambönd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Lilja Ingadóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50532
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50532

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Lilja Ingadóttir 2002-. Áhrif liðleika og styrks í aftanálærisvöðvum á ökklameiðsl í hópfimleikum. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50532