Back to search

Reykjavík University

Eflum hreyfingu og bætum hugræna getu og námsárangur barna : handbók fyrir hreyfingu í kennslustofum

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur verkefnisins var að útbúa handbók fyrir kennara og nemendur í íslenskum grunnskólum þar sem áhersla er lögð á hvernig hægt er að innleiða meiri hreyfingu í kennslustundir. Til að undirbyggja handbókina var unninn ítarlegur fræðilegur inngangur en markmið handbókarinnar er að efla einbeitingu, hugræna getu og þátttöku í skólaverkefnum og bæta námsárangur og á sama skapi bæta heilsu og vellíðan barna í grunnskólum með hreyfingu. Handbókin fjallar um þau heilsubætandi áhrif sem regluleg hreyfing hefur á börn og unglinga, hvernig hún getur styrkt hugræna getu og hvernig hægt er að samþætta hreyfingu við bóklegt nám. Þá koma einnig fram leiðir til að auka hreyfingu í kennslustofunni og nýta hana til að stuðla að betri heilsu, ánægju og námsárangri nemanda. Vonast er til þess að handbókin geti nýst kennurum og öðrum sem vinna í grunnskólum. Til að auka hreyfingu barna almennt sem og í kennslustundum, þannig að hægt sé að auka vellíðan, einbeitingu og árangur barna og unglinga, og stuðla að heilbrigðum lífsstíl með aukinni hreyfingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinar Smári Hilmarsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47746
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47746

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinar Smári Hilmarsson 1986-. Eflum hreyfingu og bætum hugræna getu og námsárangur barna : handbók fyrir hreyfingu í kennslustofum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47746