Back to search

Reykjavík University

Áskorun til framlagningar sönnunargagna í einkamálum : framkvæmd og þróun úrræðisins

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitast við að greina það úrræði í lögum um meðferð einkamála sem gerir málsaðila kleift að skora á gagnaðila að leggja fram sönnunargögn fyrir dóm. Ákvæðið kom fyrst í íslenskt réttarfar með lögum um almenna meðferð einkamála í héraði nr. 85/1936. Úrræðið í núgildandi mynd er að finna í 67. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 (eml.). Ákvæðið veitir málsaðila tækifæri til að skora á gagnaðila að leggja fram tilgreind skjöl fyrir dóm, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Við svo búið ber viðkomandi aðila að verða við þeirri áskorun. Ef hann á hinn bóginn verður ekki við áskoruninni er dómara heimilt að leggja frásögn áskorandans um efni skjalsins til grundvallar. Í því skyni að greina úrræðið verður sjónum einkum beint að nýlegri íslenskri réttarframkvæmd þar sem reynt hefur á umrædda 67. gr. eml. Þar að auki verður skoðað hvernig úrræðið hefur þróast frá því það kom fyrst í íslenska löggjöf og til dagsins í dag. Þrátt fyrir að ákvæðið í 67. gr. eml. sé efnislega samhljóða ákvæðinu í lögum nr. 85/1936 þá hefur breyting átt sér stað hvernig úrræðið er framkvæmd. Í núgildandi rétti er til staðar ólögfest meginregla sem kemur í veg fyrir að dómari taki afstöðu til efnislegra atriða varðandi sönnun með úrskurði. Þar með er dómara ekki heimilt í núgildandi rétti að kveða upp úrskurð sem tekur afstöðu til þess hvort gagnaðila beri að verða við slíkri áskorun. Í síðari hluta ritgerðarinnar er farið yfir tilsvarandi úrræði í þeim nágrannalöndum sem við berum okkur mest saman við. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru á þær að núverandi úrræði virðist vera óskilvirkara en það sem var í gildi í tíð laga nr. 85/1936 vegna áðurnefndar meginreglu. Þá eru samsvarandi úrræði í einkamálaréttarfari nágrannalanda okkar eru mikið hagkvæmari

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Tindur Helgason 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47379
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47379

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Tindur Helgason 2002-. Áskorun til framlagningar sönnunargagna í einkamálum : framkvæmd og þróun úrræðisins. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47379