Back to search

Reykjavík University

Riftun óvenjulegrar greiðslu skuldar á grundvelli 134. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

Abstract

dc:description.abstract

Eitt helsta markmið skiptastjóra við bústjórn er að hámarka verðmæti þrotabúsins. Nokkrar leiðir eru til þess tækar en helstu aðferðir skiptastjóra eru að finna í XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Á grundvelli þeirra reglna getur skiptastjóri farið fram á að tilteknum ráðstöfunum þrotamanns á tilteknu tímabili verði hnekkt. Ein mest nýtta riftunarregla gjaldþrotaréttarins má finna í 134. gr. fyrrnefndra laga sem kveður á um riftun á greiðslu skuldar fyrir frestdag sem að einhverju leyti er óvenjuleg, nema greiðslan virðist venjuleg eftir atvikum. Markmið ritgerðinnar er að gera grein þróun reglunnar og beitingu hennar í framkvæmd, auk annarra atriða sem máli skipta. Stuðst er við hina fræðilegu lagalegu aðferð (e. doctrinal method) við rannsóknina. Helstu niðurstöður ritgerðinnar eru í fyrsta lagi að greiðsla skuldar með öðru en peningum og greiðsla fyrir gjalddaga er ávallt óvenjuleg ráðstöfun, nema venja hafi myndast í viðskiptum aðila eða önnur mjög sérhæfð atriði og er dómframkvæmd mjög samrýmd í þessum efnum. Í öðru lagi að umfjöllun um greiðslur sem skert hafa greiðslugetu skuldara er takmörkuð og mat á umræddu skilyrði er matskennt. Þó má segja að sú lína sem dómstólar hafa lagt sé sú að í fyrsta lagi skuli líta til hvort starfsemi skuldara hafi verið hætt þegar greiðslan fór fram, í öðru lagi eignastöðu og skuldastöðu skuldara á þeim tíma þegar greiðslan fer fram og í þriðja lagi rýrnun sem verður á handbæru fé skuldara. Framkvæmd ákvæðisins er því ekki að öllu leyti eins og í nágrannaþjóðum okkar. Endurgreiðsla í kjölfar riftunar á grundvelli reglunnar fer að meginstefnu til með endurgreiðslu auðgunar riftunarþola, en þó má finna dæmi þess að riftunarþoli skili þeim verðmætum sem honum hefur hlotnast þegar um ræðir greiðslu með óvenjulegum greiðslueyri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Eylands Harðardóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46153
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46153

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Eylands Harðardóttir 2000-. Riftun óvenjulegrar greiðslu skuldar á grundvelli 134. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46153