Back to search

Reykjavík University

Hvernig skal haga styrktarþjálfun ungmenna í handbolta að teknu tilliti til áhrifa sem kynþroskaskeið hefur á jafnvægi og samhæfingu

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar var að öðlast betri skilning á áhrifum hraðasta vaxtaskeiðsins á líkamann þegar kemur að styrktarþjálfun ungra handbolta iðkenda og hvernig markviss jafnvægis og samhæfingar þjálfun getur dregið úr neikvæðum afleiðingum hraðasta vaxtarskeiðsins á jafnvægi og samhæfingu. Á hraðsta vaxtarskeiðinu stækkar líkaminn hratt og þá sérstaklega útlimir. Við þessa skyndilegu hröðun vaxtar versnar jafnvægi og samhæfing í líkamanum tímabundið. Með því að leggja sérstaka áherslu á að þjálfa jafnvægi og samhæfingu er mögulegt að minnka neikvæð áhrif hraðasta vaxtarskeiðsins. Ritgerðin skiptist upp í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er að finna fræðilega umfjöllun um áhrif hraðasta vaxtarskeiðsins á líkamann, meiðsli og hvernig styrktarþjálfun samhliða þjálfun á jafnvægis og samhæfingu getur dregið úr meiðslum hjá ungum handbolta iðkendum á kynþroskaskeiði. Umfjöllunin byggir á á fræðigreinum sem fjalla um það með hvaða hætti gott er að haga upphitun, styrktarþjálfun og hvernig megi flétta jafnvægis og samhæfingar æfingum inn í þjálfunaráætlanir. Í seinni hluti verkefnisins er handbók, þar sem farið er yfir nokkrar æfingar með mismunandi erfileikastigum sem hægt er að leggja til grundallar í upphitun og/eða flétta inn í æfingaáætlanir p, hvort heldur sem er á hefðbundnum æfingatímabilinum eða í endurhæfingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefán Friðrik Aðalsteinsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44863
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44863

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefán Friðrik Aðalsteinsson 1998-. Hvernig skal haga styrktarþjálfun ungmenna í handbolta að teknu tilliti til áhrifa sem kynþroskaskeið hefur á jafnvægi og samhæfingu. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44863