Back to search

Reykjavík University

Stjórnarskrár Danmerkur og Íslands : samanburðarrannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Stjórnarskrár hafa verið í deiglunni bæði á Íslandi og í Danmörku en það er ekki hlaupið að því að breyta þeim vegna strangra reglna sem þær hafa í sér fólgnar um hvernig eigi að standa að því. Í ritgerðinni, Stjórnarskrár Danmerkur og Íslands, eru stjórnarskrárnar og þar með stjórnskipulag landanna borið saman eftir reglum samanburðarlögfræðinnar í þeim tilgangi að greina muninn, kanna af hvaða rótum hann er runninn og hvaða áhrif hann hafi, einkum og sér í lagi á möguleika almennings til að hafa áhrif á stjórn lands síns. Sú almenna skoðun að stjórnarskrá Íslands sé eftirmynd stjórnarskrár Danmerkur vegna þess að þær hafi sama uppruna á 19. öld getur ekki staðist þegar horft er til þess að þeirri fyrrnefndu hefur verið breytt mun oftar en þeirri síðarnefndu. Sjónum er aðallega beint að mikilvægum lýðréttindum eins og kosningarrétti, þjóðaratkvæðagreiðslum, breytingareglu stjórnarskránna og mannréttindum auk stöðu og hlutverks þjóðhöfðingjanna og þar með hinna þriggja arma ríkisvaldsins. Ísland er lýðveldi með þjóðkjörinn forseta en Danmörk konungsríki með drottningu sem þjóðhöfðingja. Í Danmörku er her en Ísland annast hervarnir með öðrum hætti. Þá eru Danir í Evrópusambandinu, Íslendingar í Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi munur er augljós en í ritgerðinni er sjónarhornið þrengt frekar og einstaka ákvæði í stjórnarskránum borin saman og saga þeirra skoðuð. Meðal annars er athugað hvort meiri breytingatíðni í öðru tilvikinu en hinu hafi verið til góðs þannig að lýðræðislegir hættir hafi frekar styrkst í sessi eða hvort breytingareglur stjórnarskránna standi lýðræðislegum umbótum fyrir þrifum. Þrátt fyrir líkindi hafa stjórnarskrárnar þróast hvor með sínum hætti á lýðveldistímanum og sæta jafnvel sambærileg ákvæði mismunandi túlkun í löndunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þór Jónsson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44428
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44428

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þór Jónsson 1964-. Stjórnarskrár Danmerkur og Íslands : samanburðarrannsókn. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44428