Back to search

Reykjavík University

Umhverfi erlendrar fjárfestingar á Íslandi : hversu móttækilegt er Ísland gagnvart erlendri fjárfestingu, meðal annars út frá lagalegum takmörkunum, regluverki og heimildum ráðherra til inngripa?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir þeim reglum sem gilda að íslenskum rétti sem takmarka fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri og leggja mat á það hve frjór jarðvegurinn hér á landi er gagnvart erlendri fjárfestingu, meðal annars út frá lagalegum takmörkunum, regluverki og heimildum ráðherra til inngripa. Í því sambandi verður litið sérstaklega til laga um fjárfestingu erlendra aðila í íslenskum atvinnurekstri nr. 34/1991, sem kveða á um takmarkanir á erlendu eignarhaldi og fjárfestingarýni. Auk þess verður litið til laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966, sem kveða á um heimildir erlendra aðila til að öðlast fasteignaréttindi hér á landi, og laga um hlutafélög nr. 2/1995, sem kveða á um skilyrði er varða eignarhald lögaðila og búsetuskilyrði fyrir stjórn og framkvæmdastjóra. Komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að lagaumgjörð og heildarviðhorf íslenskra stjórnvalda til beinnar erlendrar fjárfestingar hafi í gegnum tíðina einkennst af ákveðinni varúð. Íslensk stjórnvöld hafa gengið talsvert lengra en önnur aðildarríki innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar er varðar takmarkanir á erlendu eignarhaldi. Auk þess eru heimildir ráðherra til inngripa gagnvart erlendum fjárfestingum víðtækari en tíðkast meðal annarra aðildarríkja stofnunarinnar. Þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu verður þó talið að Ísland sé almennt móttækilegt gagnvart erlendum fjárfestingum, sérstaklega á þeim sviðum þar sem landið hefur samkeppnisforskot og býr yfir kostum umfram önnur ríki. Má þar nefna grænar fjárfestingar og rannsóknar- og þróunarverkefni. Ýmsir sérstakir hvatar hafa í gegnum tíðina verið lögfestir til að hvetja til slíkra fjárfestinga og efla þannig samkeppnishæfni Íslands gagnvart jákvæðri erlendri fjárfestingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Sigr. Ingvarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44407
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44407

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Sigr. Ingvarsdóttir 1999-. Umhverfi erlendrar fjárfestingar á Íslandi : hversu móttækilegt er Ísland gagnvart erlendri fjárfestingu, meðal annars út frá lagalegum takmörkunum, regluverki og heimildum ráðherra til inngripa?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44407