Reykjavík University
Umgengnistálmanir : er aðfarargerð samkvæmt 50. gr. barnalaga barninu fyrir bestu?
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi ber heitið Umgengnistálmanir: Er aðfarargerð samkvæmt 50. gr. barnalaga barninu fyrir bestu? Í greinargerð með frumvarpi til laga um breytingu á barnalögum, sem varð að lögum nr. 61/2012, lagði ráðuneytið til að fella aðfararheimild 50. gr. úr barnalögum. Taldi ráðuneytið að áhættan af því að barn bíði skaða af framkvæmd aðfarar væri svo mikil að ekki væri á það hættandi að grípa til svo afdrifaríkra úrræða. Að því sögðu var það niðurstaða ráðuneytisins að aðför til að koma á umgengni gæti aldrei verið barni fyrir bestu. Umrædd tillaga ráðuneytisins var ekki samþykkt á Alþingi. Ekki voru talin næg rök fyrir því að fella aðfararheimildina algerlega á brott án þess að í staðinn kæmi annað og raunhæft úrræði sem hægt væri að nota ef verulegar tálmanir yrðu á umgengni. Í ritgerðinni er leitast við að svara hvort aðfarargerð skv. 50. gr barnalaga samrýmist meginreglu 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um það sem barni er fyrir bestu. Í viðleitni til þess var gerð viðtalsrannsókn þar sem rætt var við aðila sem hafa komið að slíkri aðfarargerð og eru sérfræðingar í málefnum barna. Einnig er rýnt í hliðstæða norræna löggjöf og dómaframkvæmd rakin. Þannig er reynt að varpa ljósi á það sem betur mætti fara þegar kemur að framkvæmd umgengnismála almennt og hvort önnur úrræði í stað aðfarargerðar til að framfylgja umgengni komi til álita með tilliti til hagsmuna barns. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að meta verði hagmsuni hvers og eins barns í hverju og einu máli fyrir sig. Meginreglan um það sem barni er fyrir bestu geti í sumum tilvikum verið túlkuð til langs tíma, þ.e. að hagsmunir barns af því að njóta umgengni sem hefur verið tálmað vegi þyngra en hættan af því að barnið hljóti skaða af framkvæmd aðfarar. Í sumum tilvikum geti aðfarargerð, skv. 50. gr. bl., verið barni svo þungbær að það réttlæti ekki framkvæmdina og þjóni þar af leiðandi ekki hagsmunum barns. Þá er komist að þeirri niðurstöðu að Ísland sé eftirbátur hinna Norðurlandanna þegar kemur að úrræðum fyrir foreldra strax við skilnað eða sambúðarslit, áður en til ágreinings kemur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Katrín Ásgeirsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41810
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41810