Back to search

Reykjavík University

Samgöngubætur : hagræn og félagsleg áhrif þeirra í nokkrum fámennum samfélögum

Abstract

dc:description.abstract

Umræða um samgöngubætur og mikilvægi þeirra fyrir samfélög á landbyggðinni er oft áberandi. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvaða raunverulegu áhrif samgöngubætur hafa á fámenn samfélög. Til þess eru tvenn samgöngumannvirki á Vestfjörðum skoðuð, Vestfjarðagöng og Bolungarvíkurgöng. Rætt er um göngin hvort í sínu lagi. Áhrif þeirra á byggðaþróun, atvinnulíf, vinnumarkað og sveitarfélög eru skoðuð auk þess sem félagslegar afleiðingar þeirra eru metnar. Erfitt er að greina áhrif ganganna tveggja á byggðaþróun en ljóst er að atvinnulífið tekur þó nokkrum breytingum með tilkomu þeirra. Þjónusta færist í einn miðlægan kjarna á meðan iðnaðarfyrirtæki virðast færast út á jaðarinn. Breytingar á vinnumarkaði eru fyrst og fremst fólgnar í fjölbreyttari störfum en ekki virðast vera skýr merki um breytingar á atvinnuleysi eða tekjum. Í tilviki Vestfjarðaganga hefur orðið mikil hagræðing í rekstri sveitarfélaga og mörg þeirra sameinast í eitt. Opnun Bolungarvíkurganga hefur hins vegar ekki orðið hvati til sameiningar sveitarfélaga. Félagsleg áhrif ganganna tveggja virðast ansi mikil. Meirihluti þátttakenda í rannsókn þessari telur aðgengi að menningu og íþróttum hafa batnað með tilkomu ganganna og afgerandi meirihluti telur lífsgæði sín og öryggi hafa aukist svo um muni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bergljót Soffía Benediktsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38769
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38769

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bergljót Soffía Benediktsdóttir 1998-. Samgöngubætur : hagræn og félagsleg áhrif þeirra í nokkrum fámennum samfélögum. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38769