Reykjavík University
Viðskipti tengdra aðila : með áherslu á 95. gr. a. og 95. gr. laga um hlutafélög
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin leitast við að svara áleitnum spurningum er varða viðskipti tengdra aðila. Hagsmunaárekstrar eru innbyggðir í viðskipti tengdra aðila er geta leitt af sér kostnað fyrir félög, hluthafa og aðra haghafa. Því er mikilvægt að félagaréttarlöggjöfin nái með árangursríkum hætti að koma í veg fyrir að viðskipti tengdra aðila leiði af sér óeðlileg samningskjör og skilmála. Í þessu samhengi leitast ritgerðin eftir því að varpa almennu ljósi á viðskipti tengdra aðila og hvaða lagaákvæði lög um hlutafélög nr. 2/1995 (hfl.) hefur að geyma til að sporna við óeðlilegum viðskiptum tengdra aðila en hafa ber í huga að viðskipti tengdra aðila út af fyrir sig þurfa ekki að fela í sér annarleg sjónarmið eða samningskjör. Einna helst eru 95. gr. og 95. gr. a. hfl. skoðuð. Bæði ákvæðin eru þess eðlis að geta spornað við verðmætaflutningi frá félagi til aðila er standa félaginu nærri. Því er mikilvægt að skýrt liggi fyrir hvernig ákvæðin eru túlkuð og hvernig þeim kann að vera beitt í framkvæmd. Dómaframkvæmd hér á landi er því miður rýr þegar kemur að lagaákvæðunum tveimur, einkum 95. gr. a. hfl. Á þeim grunni var leitað til Noregs og Danmerkur til frekari skýringar á ákvæðunum tveimur. Að mati höfundar á 95. gr. a. enn eftir að taka á sig skýrari mynd og mun túlkun ákvæðisins fyrir dómstólum eflaust leiða í ljós heildstæðari skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins sem mun auka réttarvissu allra aðila er standa að baki hlutafélögum hér á landi. Hvað varðar 95. gr., er það miður að ekki megi finna skýrari og beinskeyttari fræðiumfjöllun hér á landi um hvernig aðilar geta beitt fyrir sig ákvæðinu telji þeir á rétti sínum brotið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hannes Guðmundsson 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38665
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38665