Back to search

Reykjavík University

Próf sem meta hreyfifærni og hreysti barna : handbók fyrir kennara

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um próf sem meta hreyfifærni og hreysti barna í 1 - 10 bekk og var það unnið á haust og vorönn 2019 - 2020 við Háskólann í Reykjavík. Einn af mikilvægustu þáttunum þegar kemur að líkamlegri virkni barna er talinn vera hreyfifærni barnsins. Þar sem börn með góða hreyfifærni virðast fá meiri ánægju úr íþróttum og leikjum og mynda því frekar ævilöng tengsl við hreyfingu á meðan þau börn sem búa yfir slakri hreyfifærni virðast forðast hreyfingu. Því er mikilvægt að fylgjast með þessum þáttum og sjá hvar börnin standa. Verkefnið er þannig byggt upp að farið verður yfir hreyfifærni og undirþætti þess, því næst verður farið yfir líkamshreysti og þá helstu hluti sem hafa þarf í huga þegar prófanir eru gerðar á líkamshreysti barna. Í lokin er farið yfir fjögur próf sem meta hreyfifærni og fjögur próf sem meta líkamshreysti. Gerður er bæklingur sem fjallar um prófin og fylgir hann með verkefninu. Er það von höfundar að handbók þessi geti nýst kennurum við að meta og fylgjast með hreyfifærni og hreysti sinna nemenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Davíð Guðmundsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36343
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36343

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Guðmundsson 1994-. Próf sem meta hreyfifærni og hreysti barna : handbók fyrir kennara. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36343