Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi ber heitið: Mörk frádráttarbærra vaxtagjalda í skattskilum. Umfjöllunarefninu er ætlað að gera lesendum kleift að sjá hvenær vextir af skuldum, sem draga má frá skattskyldum tekjum fyrirtækja, hafa farið út fyrir heimildir sínar í skilningi laganna. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að svara þeirri spurningu, hvenær gjaldfæra megi vexti af skuldum í skattskilum og hvaða takmarkanir er að finna í íslenskum rétti og dómaframkvæmd, en áhersla er lögð á hlutafélög. Höfundur nálgast viðfangsefnið með þeim hætti að skipta því upp í tvo meginhluta. Í fyrri hlutanum er farið yfir þær heimildir í lögum til að draga frá vaxtagjöld og hvaða skilyrði þurfi þar að uppfylla, meðal annars skilyrði þess að teljast rekstrarkostnaður og þau viðbótarskilyrði sem varða vexti af skuldum. Einnig er útskýrt þau helstu hugtök sem reynir hvað mest á í framkvæmd við skilgreiningu vaxtagjalda, til dæmis með samanburði á hugtökunum og varpa þar ljósi á þau mismunandi auðkenni sem sýna hvers eðlis gjöldin eru. Í seinni hlutanum eru flokkaðar þær helstu takmarkanir sem settar eru á frádráttarbærni vaxtagjalda, sem ýmist má sjá í íslenskum lögum og dómaframkvæmd. Höfundur fer þá leið að flokka umræddar takmarkanir eftir frádráttaraðferðum, en með því telur hann að lesendur geti gert sér betri grein fyrir því hvar mörk frádráttarbærra vaxtagjalda liggja. Ef litið er heildstætt á niðurstöðuna er það lykilatriði að frádráttarbær vaxtagjöld þurfi að hafa rekstrarlegan tilgang og geta talist til kostnaðar við að afla eða ávaxta fé í rekstri. Skattyfirvöld hafa samt sem áður heimild til að leiðrétta þann kostnað, ef hann telst óvenjulegur í viðskiptum milli óháðra aðila í skilningi laganna. Niðurstaðan er þrátt fyrir það sú sama, að vaxtagjöldin teljast ekki frádráttarbær.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynjar Örn Rúnarsson 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36008
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36008