Back to search

Reykjavík University

Draumadeildin : draumaliðsdeild fyrir handboltann á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í vinsælustu íþróttagreinum heims hafa sprottið upp ýmsar útgáfur af draumaliðsleikjum sem notið hafa mikilla vinsælda erlendis. Slíkir afþreyingarleikir hafa ekki náð mikilli fótfestu á Íslandi þó svo boðið hafi verið upp á draumaliðsdeildir bæði í fótbolta og körfubolta. Ástæðan fyrir dræmum viðtökum má trúlega rekja til takmarkaðrar markaðssetningar og bágborins viðmóts. Í gegnum árin hefur handbolti verið ein ástsælasta íþrótt Íslendinga og búum við nú yfir ungum og efnilegum landsliðum. Nú er því lag að setja á laggirnar draumaliðsdeild fyrir úrvalsdeildir handboltans á Íslandi. Ef vel tekst til þá gæti draumaliðsdeildin aukið áhorf og áhuga landsmanna á handbolta. Markmið þessa lokaverkefnis er að smíða slíkan leik í formi vefsíðu. Hægt verður að spila leikinn bæði í úrvalsdeild karla og kvenna. Verkefnið er sjálfstætt og því þarf teymið að huga að uppbyggingu kerfisins frá upphafi til enda. Það ferli felur í sér meðal annars þarfagreiningu, hönnun og útfærslu á kerfinu. Til að allt gangi upp þarf að skipuleggja vinnu vel og ganga úr skugga um að viðfang verkefnisins sé hæfilegt út frá gefnum tímaramma. Af þeim sökum þarf að brjóta kerfið upp í kröfur og forgangsraða þeim á þann veg að í lokin verði nothæfur leikur. Einnig er mikilvægt að viðmót leiksins sé einfalt og stílhreint svo auðveldara sé að fá notendur til að spila leikinn. Af þeim ástæðum ákvað teymið að leggja áherslu á góða hönnun sem síðar var prófuð af mögulegum notendum og endurhönnuð út frá niðurstöðum þeirra. Afurðin er Draumadeildin, draumaliðsdeild fyrir handbolta á Íslandi. Leikurinn snýst um að smíða sér lið úr handboltaleikmönnum í úrvalsdeildinni og etja kappi í stigasöfnun við aðra notendur. Stigasöfnunin virkar þannig að í lok hverrar umferðar fá leikmenn stig út frá frammistöðu sinni í þeim leikjum sem þeir spiluðu. Til þess að tryggja stöðugleika og notendaupplifun kerfisins voru gerðar kerfis og notendaprófanir. Í þessari skýrslu verður farið yfir ferlið hvernig Draumadeildin þróaðist úr því að vera hugmynd sem að lokum varð að veruleika.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Kolbeinn Ari Arnórsson 1996-
  • Jóhann Helgi Gunnarsson 1994-
  • Kristján Ingi Geirsson 1994-
  • Harpa Guðrún Hreinsdóttir 1996-
  • Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33613
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33613

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbeinn Ari Arnórsson 1996-; Jóhann Helgi Gunnarsson 1994-; Kristján Ingi Geirsson 1994-; Harpa Guðrún Hreinsdóttir 1996-; Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1996-. Draumadeildin : draumaliðsdeild fyrir handboltann á Íslandi. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33613