Back to search

Reykjavík University

Samfélagsábyrgð og mannauðsstjórnun : eflir samfélagsábyrgð fyrirtækja starfsánægju og tryggð starfsmanna?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsakenda var að kanna hvort að samfélagsábyrgð fyrirtækja efli starfsánægju og tryggð starfsmanna hjá fyrirtækjum á Íslandi. Rannsakendur tóku sex djúpviðtöl við mannauðsstjóra sex fyrirtækja sem koma úr mismunandi atvinnugeira. Fyrirtækin hafa öll hlotið tilnefningu til verðlauna á vegum Festu, Stjórnvísi og Viðskiptaráði. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þátttakendur voru sammála um að samfélagsábyrgð hafi jákvæð áhrif á starfsánægju en fæstir höfðu töluleg gögn til að sýna bein tengsl á milli samfélagsábyrgðar og starfsánægju. Aðeins einn þátttakandi hafði töluleg gögn um hækkandi starfsánægju við innleiðingu á samfélagsábyrgð en taldi að það væri ekki hægt að fullyrða að samfélagsábyrgð ein og sér hefði aukið starfsánægju. Öll fyrirtækin í úrtaki rannsakenda hafa mælst með háa starfsánægju í mörg ár og þar með talin árin fyrir innleiðingu á samfélagsábyrgð. Vegna hárra mælinga á starfsánægju fyrirtækjanna áttu þátttakendur erfitt með að fullyrða að samfélagsábyrgð hafi haft áhrif á starfsánægju þar sem ekki var mikinn mun að sjá milli ára. Samkvæmt niðurstöðum rannsakanda telja þátttakendur að samfélagsábyrgð fyrirtækja muni spila stórt hlutverk í starfsánægju starfsmanna í framtíðinni og upp sé að koma ný kynslóð sem leggur meiri áherslu á samfélagsábyrgð en núverandi kynslóð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Daníel Andri Baldursson 1995-
  • Marteinn Már Antonsson 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33069
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33069

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Andri Baldursson 1995-; Marteinn Már Antonsson 1996-. Samfélagsábyrgð og mannauðsstjórnun : eflir samfélagsábyrgð fyrirtækja starfsánægju og tryggð starfsmanna?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33069