Back to search

Reykjavík University

Guide to Iceland: Markaðsrannsókn fyrir innkomu á evrópskan markað

Abstract

dc:description.abstract

Ferðamennska er ört stækkandi atvinnugrein víðast hvar í Evrópu og hefur spilað stórt hlutverk í efnahag margra ríkja. Með auknum vexti fylgja tækifæri fyrir innkomu Guide to Iceland á erlenda markaði en árangur fyrirtækisins á þeim mörkuðum hefur þó ekki verið í samræmi við væntingar. Fyrirtækið hefur reynt inngöngu með leyfisveitingu og sameiningarfyrirtæki en nú er hins vegar stefnan að reyna fyrir sér sjálfstætt á nýjum markaði þar sem að styrkleikar fyrirtækisins gætu nýst. Í verkefninu var svarað því á hvaða markað Guide to Iceland ætti að stefna innan Evrópu. Verkefnið var tvískipt, fyrri hluti rýnir í Evrópskan markað með það að markmiði að velja markað sem greindur er dýpra í seinni hluta verkefnisins. Við greiningu á vali markaðar var notast við tölfræðileg gögn um fjölda ferðamanna, tekjur frá ferðamönnum og tölur frá niðurstöðum Google sem sýna áhuga á markaði og samkeppni innan markaðar. Notast var við markaðsfræðilegar greiningar á borð við fimm krafta líkan Porters, PEST og SVÓT til þess að hjálpa Guide to Iceland að koma inn á markaðinn. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að tækifæri eru til staðar fyrir innkomu Guide to Iceland á slóvakískan markað. Erlendum ferðamönnum sem koma til Slóvakíu hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að vöxturinn muni aukast á komandi árum. Ferðamenn í Slóvakíu eru að leita að svipaðri afþreyingu og því sem að Ísland hefur upp á að bjóða. Höfundar telja því Slóvakíu vera hentugan áfangastað sem fyrsta kost fyrir áframhaldandi vöxt innan Evrópu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Haukur Guðmundsson 1995-
  • Ólíver Guðsteinsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33039
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33039

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Guðmundsson 1995-; Ólíver Guðsteinsson 1995-. Guide to Iceland: Markaðsrannsókn fyrir innkomu á evrópskan markað. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33039