{"id":{"repo_id":"reykjavik","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/33039"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/reykjavik/oai:skemman.is:1946/33039","repository":{"repo_id":"reykjavik","name":"Reykjavík University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Guide to Iceland: Markaðsrannsókn fyrir innkomu á evrópskan markað","abstract":"Ferðamennska er ört stækkandi atvinnugrein víðast hvar í Evrópu og hefur spilað stórt hlutverk í efnahag margra ríkja. Með auknum vexti fylgja tækifæri fyrir innkomu Guide to Iceland á erlenda markaði en árangur fyrirtækisins á þeim mörkuðum hefur þó ekki verið í samræmi við væntingar. Fyrirtækið hefur reynt inngöngu með leyfisveitingu og sameiningarfyrirtæki en nú er hins vegar stefnan að reyna fyrir sér sjálfstætt á nýjum markaði þar sem að styrkleikar fyrirtækisins gætu nýst. Í verkefninu var svarað því á hvaða markað Guide to Iceland ætti að stefna innan Evrópu. Verkefnið var tvískipt, fyrri hluti rýnir í Evrópskan markað með það að markmiði að velja markað sem greindur er dýpra í seinni hluta verkefnisins. Við greiningu á vali markaðar var notast við tölfræðileg gögn um fjölda ferðamanna, tekjur frá ferðamönnum og tölur frá niðurstöðum Google sem sýna áhuga á markaði og samkeppni innan markaðar. Notast var við markaðsfræðilegar greiningar á borð við fimm krafta líkan Porters, PEST og SVÓT til þess að hjálpa Guide to Iceland að koma inn á markaðinn. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að tækifæri eru til staðar fyrir innkomu Guide to Iceland á slóvakískan markað. Erlendum ferðamönnum sem koma til Slóvakíu hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að vöxturinn muni aukast á komandi árum. Ferðamenn í Slóvakíu eru að leita að svipaðri afþreyingu og því sem að Ísland hefur upp á að bjóða. Höfundar telja því Slóvakíu vera hentugan áfangastað sem fyrsta kost fyrir áframhaldandi vöxt innan Evrópu.","abstract_html":"Ferðamennska er ört stækkandi atvinnugrein víðast hvar í Evrópu og hefur spilað stórt hlutverk í efnahag margra ríkja. Með auknum vexti fylgja tækifæri fyrir innkomu Guide to Iceland á erlenda markaði en árangur fyrirtækisins á þeim mörkuðum hefur þó ekki verið í samræmi við væntingar. Fyrirtækið hefur reynt inngöngu með leyfisveitingu og sameiningarfyrirtæki en nú er hins vegar stefnan að reyna fyrir sér sjálfstætt á nýjum markaði þar sem að styrkleikar fyrirtækisins gætu nýst. Í verkefninu var svarað því á hvaða markað Guide to Iceland ætti að stefna innan Evrópu. Verkefnið var tvískipt, fyrri hluti rýnir í Evrópskan markað með það að markmiði að velja markað sem greindur er dýpra í seinni hluta verkefnisins. Við greiningu á vali markaðar var notast við tölfræðileg gögn um fjölda ferðamanna, tekjur frá ferðamönnum og tölur frá niðurstöðum Google sem sýna áhuga á markaði og samkeppni innan markaðar. Notast var við markaðsfræðilegar greiningar á borð við fimm krafta líkan Porters, PEST og SVÓT til þess að hjálpa Guide to Iceland að koma inn á markaðinn. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að tækifæri eru til staðar fyrir innkomu Guide to Iceland á slóvakískan markað. Erlendum ferðamönnum sem koma til Slóvakíu hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að vöxturinn muni aukast á komandi árum. Ferðamenn í Slóvakíu eru að leita að svipaðri afþreyingu og því sem að Ísland hefur upp á að bjóða. Höfundar telja því Slóvakíu vera hentugan áfangastað sem fyrsta kost fyrir áframhaldandi vöxt innan Evrópu.","abstract_has_math":false,"creators":["Haukur Guðmundsson 1995-","Ólíver Guðsteinsson 1995-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn í Reykjavík"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2019,"date_issued":"2019-05-15T10:43:29Z","date_published":"2019-05-15T10:43:29Z","updated_at":"2026-07-27T20:42:37Z","subjects":["Viðskiptafræði","Markaðsrannsóknir","Ferðaþjónusta"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/33039","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn í Reykjavík"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Haukur Guðmundsson 1995-","Ólíver Guðsteinsson 1995-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2019-05-15T10:43:28Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2019-05-15T10:43:28Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2019-05-15T10:43:29Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Markaðsrannsóknir","Ferðaþjónusta"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/33039"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Ferðamennska er ört stækkandi atvinnugrein víðast hvar í Evrópu og hefur spilað stórt hlutverk í efnahag margra ríkja. Með auknum vexti fylgja tækifæri fyrir innkomu Guide to Iceland á erlenda markaði en árangur fyrirtækisins á þeim mörkuðum hefur þó ekki verið í samræmi við væntingar. Fyrirtækið hefur reynt inngöngu með leyfisveitingu og sameiningarfyrirtæki en nú er hins vegar stefnan að reyna fyrir sér sjálfstætt á nýjum markaði þar sem að styrkleikar fyrirtækisins gætu nýst. Í verkefninu var svarað því á hvaða markað Guide to Iceland ætti að stefna innan Evrópu. Verkefnið var tvískipt, fyrri hluti rýnir í Evrópskan markað með það að markmiði að velja markað sem greindur er dýpra í seinni hluta verkefnisins. Við greiningu á vali markaðar var notast við tölfræðileg gögn um fjölda ferðamanna, tekjur frá ferðamönnum og tölur frá niðurstöðum Google sem sýna áhuga á markaði og samkeppni innan markaðar. Notast var við markaðsfræðilegar greiningar á borð við fimm krafta líkan Porters, PEST og SVÓT til þess að hjálpa Guide to Iceland að koma inn á markaðinn. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að tækifæri eru til staðar fyrir innkomu Guide to Iceland á slóvakískan markað. Erlendum ferðamönnum sem koma til Slóvakíu hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að vöxturinn muni aukast á komandi árum. Ferðamenn í Slóvakíu eru að leita að svipaðri afþreyingu og því sem að Ísland hefur upp á að bjóða. Höfundar telja því Slóvakíu vera hentugan áfangastað sem fyrsta kost fyrir áframhaldandi vöxt innan Evrópu."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Guide to Iceland: Markaðsrannsókn fyrir innkomu á evrópskan markað"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn í Reykjavík"],"dc:creator":["Haukur Guðmundsson 1995-","Ólíver Guðsteinsson 1995-"],"dc:date.accessioned":["2019-05-15T10:43:28Z"],"dc:date.available":["2019-05-15T10:43:28Z"],"dc:date.issued":["2019-05-15T10:43:29Z"],"dc:description.abstract":["Ferðamennska er ört stækkandi atvinnugrein víðast hvar í Evrópu og hefur spilað stórt hlutverk í efnahag margra ríkja. Með auknum vexti fylgja tækifæri fyrir innkomu Guide to Iceland á erlenda markaði en árangur fyrirtækisins á þeim mörkuðum hefur þó ekki verið í samræmi við væntingar. Fyrirtækið hefur reynt inngöngu með leyfisveitingu og sameiningarfyrirtæki en nú er hins vegar stefnan að reyna fyrir sér sjálfstætt á nýjum markaði þar sem að styrkleikar fyrirtækisins gætu nýst. Í verkefninu var svarað því á hvaða markað Guide to Iceland ætti að stefna innan Evrópu. Verkefnið var tvískipt, fyrri hluti rýnir í Evrópskan markað með það að markmiði að velja markað sem greindur er dýpra í seinni hluta verkefnisins. Við greiningu á vali markaðar var notast við tölfræðileg gögn um fjölda ferðamanna, tekjur frá ferðamönnum og tölur frá niðurstöðum Google sem sýna áhuga á markaði og samkeppni innan markaðar. Notast var við markaðsfræðilegar greiningar á borð við fimm krafta líkan Porters, PEST og SVÓT til þess að hjálpa Guide to Iceland að koma inn á markaðinn. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að tækifæri eru til staðar fyrir innkomu Guide to Iceland á slóvakískan markað. Erlendum ferðamönnum sem koma til Slóvakíu hefur fjölgað mikið og útlit er fyrir að vöxturinn muni aukast á komandi árum. Ferðamenn í Slóvakíu eru að leita að svipaðri afþreyingu og því sem að Ísland hefur upp á að bjóða. Höfundar telja því Slóvakíu vera hentugan áfangastað sem fyrsta kost fyrir áframhaldandi vöxt innan Evrópu."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/33039"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Markaðsrannsóknir","Ferðaþjónusta"],"dc:title":["Guide to Iceland: Markaðsrannsókn fyrir innkomu á evrópskan markað"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T20:42:37Z"}