Back to search

Reykjavík University

Markaðssetning íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á ferðabloggsíðum

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni miðar að því að kanna hagnýtingu ferðabloggsíðna sem markaðstól fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki. Ferðaþjónusta er blómstrandi atvinnugrein sem hefur farið sívaxandi undanfarin ár. Kaup og sala á slíkri þjónustu fer yfirleitt fram í gegnum internetið. Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að mikilvægt er fyrir neytendur að geta aflað sér nægjanlegra upplýsinga um vörur og þjónustu áður en gengið er frá kaupum á internetinu. Í tilfelli ferðaþjónustu eru frásagnir óháðra einstaklinga, reynsla þeirra og upplifun af þjónustunni sterkustu upplýsingar sem völ er á fyrir neytendur. Því eru ferðabloggsíður einn helsti miðill fyrir ferðaþjónustufyrirtæki til að markaðssetja sig á þar sem þær gefa kost á ítarlegri umfjöllun í texta, ljósmyndum og myndböndum. Þar að auki hefur notkun og vinsældir ferðabloggsíðna aukist að sama skapi og ferðaþjónusta hefur gert í gegnum árin. Verkefninu er skipt í tvo hluta. Í fyrstu verður ferðaþjónusta skoðuð, hvað í henni felst og hvernig markaðssetningu á henni sé best hagað. Farið verður yfir ferðaþjónustu á Íslandi, þá möguleika sem eru til staðar í markaðssetningu og hvernig hægt er að mæla arðsemi nútíma markaðssetningar. Í seinni hluta verkefnisins verður greint frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var til að kanna hvort íslensk ferðaþjónustufyrirtæki nýti sér ferðabloggsíður í sinni markaðssetningu og þá hvernig. Þar kom í ljós að ferðaþjónustufyrirtæki hérlendis eru mörg hver að nýta sér þennan miðil, nánar tiltekið 58% fyrirtækja sem tóku þátt í rannsókninni og það með fremur svipuðum hætti sín á milli. Rannsóknin fólst í skriflegum viðtölum við 60 fyrirtæki sem starfa í ferðaþjónustu á Íslandi og 2 bloggara á erlendum ferðabloggsíðum. Lykilorð: Ferðabloggsíður, ferðaþjónustufyrirtæki, ferðaþjónusta, markaðssetning, samfélagsmiðlar, bloggsíður, umtal, leitarvélabestun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlía Björk Jóhannsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30809
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30809

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlía Björk Jóhannsdóttir 1995-. Markaðssetning íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á ferðabloggsíðum. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30809