Reykjavík University
Ljónin í veginum : viðhorf millistjórnenda í fjármálageiranum til hindrana kvenna sem sækjast í stjórnunarstörf
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er aðalviðfangsefnið kvenstjórnendur í fjármálageiranum. Þar sem konur eru meirihluti allra starfsmanna í fjármálageiranum kom það höfundi á óvart að þær eru í miklum minnihluta í æðstu stjórnunarstörfum. Leitast var við að svara af hverju svo er og einnig var skoðað hvort hindranir virðist vera í vegi kvenna í átt að æðstu stjórnunarstöðum. Tekin voru fimm djúpviðtöl við millistjórnendur í fjármálageiranum, þrjár konur og tvo karla. Stuðst var við eigindlega rannsóknaraðferð við úrvinnslu gagna. Niðurstöður leiddu í ljós að viðmælendur töldu helstu ástæður þess að konur eru í miklum minnihluta æðstu stjórnunarstarfa í fjármálageiranum vera annars vegar þá að þær sinni frekar störfum sem þarfnast lægra menntunarstigs og minni reynslu og hins vegar að ýmsar hindranir væru í vegi kvenna. Flestir viðmælendurnir voru sammála um að stærsta hindrun kvenna væru þær sjálfar. Kvenkyns viðmælendurnir höfðu orðið varir við ýmis ljón í vegi sínum. Sem dæmi má nefna útilokun frá samskiptum, staðalímyndir, fjölskyldulífið og glerþakið. Ekki er þó öll von úti fyrir konur sem hafa áhuga á að komast í æðstu stjórnunarstörf en viðmælendur töldu tengslanet, markþjálfun og handleiðslu geta skipt sköpum fyrir einstaklinga sem vilja klífa upp metorðastigann.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halla Margrét Bjarkadóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28401
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28401