Back to search

Reykjavík University

Líkamlegt álag og ákefð hjá íslenskum sportdönsurum

Abstract

dc:description.abstract

Sportdans á sér langa sögu og þróaðist mikið á 19. öld. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða líkamlegt álag og ákefð á íslenskum dönsurum. 18 pör tóku þátt á aldrinum 14-27 ára, þeim var skipt niður í tvo hópa eftir aldri. Rannsókninni var skipt niður á tvo daga. Fyrsta daginn voru grunnmælingar teknar af þátttakendum eins og hæð, þyngd, hámarkshjartsláttur. Píptest var notað til þess að áætla hámarkssúrefnisupptöku hjá þátttakendum. Seinni daginn voru pörin fengin til að dansa umferð af dönsunum í sitthvorum stílnum. Niðurstöður sýna að pörin nota bæði loftfirrt og loftháð þol þegar umferðin var tekin. Einnig var ekki mikil munur á milli dansstíla eins og erlendar rannsóknir sýna en suður-amerísku dansarnir voru aðeins hærri í prósentu af hámarkshjartslætti en yfir heildartímann þá voru standard dansarnir með hærri prósentu af hámarkshjartslætti. Hámarkssúrefnisupptaka var lægri hjá íslenskum pörum en í fyrri rannsóknum en var svipuð í rannsókn sem Bankby gerði. Áætlaða hámarkssúrefnisupptakan hjá Þátttakendum myndi flokkast samkvæmt Cooper stofnuninni sem ágætt eða yfirburðar gott. Þegar tölurnar eru bornar saman við aðrar íþróttir þá eru heildarmeðaltölin hjá bæði yngri og eldri hópnum yfir blaki og fimleikum en undir fótbolta og sundi samkvæmt rannsókninni sem Bria gerði en karlarnir voru þó yfir meðaltalinu í fótbolta. Það sjást einnig tengsl á milli tónlistar og stigvaxandi ákefðar út frá hjartslætti. Þar sést stigvaxandi ákefð eftir því sem takturinn verður hraðari og meira álag er á dönsurunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Ingvar Karlsson Brune 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25561
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25561

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Ingvar Karlsson Brune 1989-. Líkamlegt álag og ákefð hjá íslenskum sportdönsurum. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25561