Back to search

Reykjavík University

Greining á framleiðsluleiðum í vinnslu á þorski með notkun reiknilíkans

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er landvinnsla á þorski hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Þorbirni hf í Grindavík skoðuð. Saga sjávarútvegs- og saltfiskvinnslu á Íslandi er rakin í stuttu máli og fjallað um umhverfi íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Fjallað er um markaðsmál erlendis út frá sjónarhóli útflytjenda á saltfiski og ferskum þorski. Nútíma aðferðir við vinnslu á þorski eru skoðaðar og sérstaklega er söltun og notkun fosfats í vinnslunni greind. Þá er einnig greining á innra og ytra umhverfi Þorbjarnar. Unnið var líkan samhliða ritgerðinni þar sem leitast var við að greina niður helstu aðferðir við þorskframleiðsluna og setja upp á þann hátt að auðvelt væri fyrir stjórnendur að sjá helstu lykiltölur framleiðslunnar. Það sem hið nýja líkan hefur fram yfir fyrra kerfi sem var í notkun hjá fyrirtækinu er að mögulegt er að sjá á fljótlegan hátt með hvaða framleiðsluleið er hægt að ná mestri framlegð fyrir hvert kíló af hráefni sem kemur inn í vinnsluna eftir stærðar og gæðaflokki. Auk þess sýnir líkanið hlutfall og virði þeirra aukaafurða sem falla til í framleiðslunni. Niðurstöðurnar sýna að líkanið getur borið saman allar framleiðsluleiðir í vinnslunni og sýnt hagkvæmustu leiðina miðað við virði afurða, kostnað og þyngd hráefnis. Þar sést einnig að virði aukaafurða sem falla til við framleiðsluna geta í vissum tilvikum haft úrslitaáhrif á það hvaða framleiðsluleið er valin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Óskar Gunnarsson 1987-
  • Gunnar Eiríksson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19457
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19457

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óskar Gunnarsson 1987-; Gunnar Eiríksson 1988-. Greining á framleiðsluleiðum í vinnslu á þorski með notkun reiknilíkans. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19457