Hólar University College
Ræs! – Síld! : rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er sambandið milli safnsins og nærsamfélagsins skoðað og er markmiðið að varpa ljósi á hvaða þættir geti stuðlað að sterkari tengslum þar á milli. Rannsóknin er eigindleg, um er að ræða tilfellarannsókn og megin gagnasöfnun fór fram í formi rýnihópaviðtala. Fyrri rannsóknir undirstrika mikilvægi safna sem menntastofnana og að mikilvægt sé að þau tengist fjölbreyttum hópum samfélagsins. Þetta hefur reynst mörgum söfnum erfitt. Síldarminjasafn Íslands sinnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu á Siglufirði, en erfiðast hefur reynst að ná til fólks í heimabyggð sem er þó mikilvægur markhópur safnsins. Rannsóknin leitast við að greina þá þætti sem hafa áhrif á tengsl safnsins við nærsamfélagið, hvernig styrkja megi sambandið þar á milli og um leið að stuðla að aukinni þekkingu á menningararfinum og inngildingu fjölbreyttra hópa. Með því að brúa bilið milli safnsins og heimafólks er möguleiki á að fjölga gestum og stuðla að eflingu á félagsanda í samfélaginu. Rannsókninni er ætlað að vera innlegg í umræðuna um tengsl safna og samfélaga og gefa innsýn í hvernig hægt sé að efla samfélagslega þátttöku safna þannig að þau tengist betur sínu nærsamfélagi. Helstu niðurstöður benda til að fjölbreytt viðburðahald, og margskonar samstarf við heimafólk skiptir sköpum hvað varðar að dýpka tengsl safna við sín nærsamfélög. Lykilorð: Safn, samfélag, samfélagsþátttaka, inngilding, staðartilfinning, að tilheyra
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Daníel Pétur Daníelsson 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51490
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51490