Hólar University College
Nýting lítilla sveitasundlauga í heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu
Abstract
dc:description.abstractRannsóknarspurning verkefnisins er: Hverjir eru framtíðarmöguleikar lítilla manngerðra sundlauga á Íslandi, sem ekki hafa fengið rekstrarleyfi skv. reglugerð 814/2010, innan heilsu og vellíðunarferðaþjónustu á Íslandi ? Markmið verkefnisins er að skýra stöðu þessara sundlauga í stjórnsýslunni og kanna hvort hugsanlega megi nýta þær með markvissari hætti í ferðaþjónustu um land allt. Í fræðilega hluta verkefnisins er gerð grein fyrir þeirri auðlind sem sundlaugarnar byggja á, þ.e. jarðfræði og jarðvarma landsins. Þá er farið yfir helstu skilgreiningar og hugmyndir tengdar heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu, og að lokum er kafli þar sem gerð er grein fyrir stjórnsýslulegu umhverfi sund- og baðstaða á Íslandi. Að lokinni fræðilegri umfjöllun er greint frá rannsóknaraðferðum, rannsóknarferli og greiningu gagna. Eigindlegum og megindlegum rannsóknaraðferðum var beitt, þar sem rýnt var í fyrirliggjandi gögn, sendir út spurningalistar og eitt djúpviðtal tekið við lykilaðila í stjórnsýsluþessaralauga.Greint erfrániðurstöðumogþæraðlokumræddarí umræðukafla ritgerðarinnar. Niðurstöður leiddu í ljós að reglugerð nr. 814/2010 er ekki sniðin af þeim sundlaugum sem þetta verkefni snýst um og hafa fæstar þeirra starfsleyfi eða möguleika á því að fá starfsleyfi samkvæmt gildandi reglum. Í rauninni tilheyra þær engum stað innan kerfisins eins og staðan er í dag. Afleiðingin er sú að þó laugarnar sé nýttar af almenningi, þar með ferðamönnum, eru þær að stórum hluta eftirlitslausar og í slæmu ástandi. Hluti af lausninni liggur í drögum að reglugerð um baðstaði í náttúru Íslands sem nú liggja í Umhverfis- ráðuneytinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Björk Sigurðardóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21630
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21630