Hólar University College
Hraunhellar á Íslandi : getur verndun náttúruminja og ferðamennska átt samleið?
Abstract
dc:description.abstractFerðaþjónustan á Íslandi hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Með aukningu ferðamanna eykst óhjákvæmilega ágangur og átroðningur við ferðamannastaði og hættan á skemmdum eykst samhliða. Markmiðið með þessu verkefni er að kanna hvort saman fari verndun hraunhella og nýting þeirra til ferðamennsku á Íslandi. Hraunhellar eru viðkvæmar náttúruminjar, og liggja margir hverjir undir skemmdum vegna ágangs. Rætt var við þrjá hagsmunaaðila, tvo leiðsögumenn og formann verndunar hjá Hellarannsóknarfélagi Íslands, til að kanna hug þeirra til verndunar og nýtingar hraunhella á Íslandi. Ásamt viðtölum var stuðst við fræðilegar rannsóknir á hellum, bækur um tengd málefni og ritrýndar greinar. Helstu niðurstöður úr þessu verkefni er að allir viðmælendur eru fylgjandi verndun þó svo að algjör lokun og friðlýsing hafi ekki hugnast öllum. Samstillt átak í aðgengismálum var öllum viðmælendum ofarlega í huga, en það er eins og hraunhellar hafi gleymst í öllu tali um uppbyggingu ferðamannastaða. Hvað varðar hella sem eiga eftir að finnast í framtíðinni væri heppilegra að þeir yrðu kannaðir og metnir áður en þeir væru opnaðir fyrir aðila í ferðaþjónustu og aðra gesti. Viðmælendurnir líta á verndun hraunhella sem tækifæri frekar en ógn, með verndun væri einnig hægt að nýta hella og veita ferðmönnum jákvæða upplifun en að sama skapi auka öryggi þeirra. Lykilorð: Hraunhellar, verndun náttúruminja, friðlýsingar, auðlindastjórnun, aðgengi, ferðamennska
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Inga Hrönn Sverrisdóttir 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25061
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25061