Hólar University College
Þróun á kynjaskiptingu knapa á Landsmótum hestamanna 1978-2022 : staða og mögulegur lærdómur frá öðrum löndum
Abstract
dc:description.abstractHlutfall karla og kvenna í hestamennsku hefur breyst mikið frá því hesturinn fór úr því að vera vinnudýr yfir í að vera tómstundagaman, sérstaklega eftir miðja 20. öld. Hestaíþróttir eru ein af fáum greinum þar sem konur og karlar keppa í sömu flokkum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að kvenkyns knöpum í keppni á Landsmótum hestamanna, fjölgaði hlutfallslega á árunum frá 1978-2022. Hlutfall kvenna var hæst í keppnum í yngri flokkum og fór í um og yfir 80% á nokkrum landsmótanna. Fyrir 1990 voru strákar hlutfallslega fleiri í hópi 15 ára og yngri, en síðan hefur hlutfall stelpna aukist jafnt og þétt. Þessu var öfugt farið í keppnum í A-flokki, B-flokki og tölti, þar sem karlar voru hlutfallslega fleiri, allt tímabilið sem skoðað var. Konum fjölgaði þó í þessum greinum og í B-flokki þar sem hlutfallið varð lægst 10%, var það rúm 40% árið 2022. Sama ár var hlutfall kvenkyns knapa í A-flokki hærra en nokkru sinni fyrr, rúm 41% og þá voru konur tæp 38% keppenda í tölti. Þetta sýnir að konur sóttu fram í hestamennsku á tímabilinu, þó sú þróun hafi gerst hægar í meistaraflokkum. Niðurstöðurnar vöktu spurningar um hvers vegna konur virtust skila sér síður úr yngri flokkum og upp í meistaraflokka. Rannsóknir frá öðrum löndum sýndu að víða hefur verið litið á greinina sem kvennasport á síðari árum. Ákveðið samhengi virtist milli þróunarinnar á Íslandi og erlendis, stelpur voru í meirihluta í yngri flokkum en karlar í efstu stigum keppninnar. Draga má þá ályktun að með sömu þróun hérlendis, gætu kvenkyns knapar átt eftir að verða í meirihluta í öllum flokkum. Það gæti kallað á aðgerðir til að tryggja kynjajafnvægi, þar sem mætti nýta reynslu frá öðrum löndum. Loks má spyrja hvort aðgerðir til að draga úr kynjahalla þyrftu ekki að taka mið af breyttum samfélagsviðmiðum varðandi skilgreiningu og hlutverk kynja, í síbreytilegum heimi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrefna Rós Lárusdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44991
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44991