Back to search

Hólar University College

Skipulagsbreytingar hjá HMS : áhrif á starfsánægju

Abstract

dc:description.abstract

Breytingar geta haft ýmis áhrif, meðal annars á starfsánægju, og hún getur haft áhrif á frammistöðuna sem getur haft áhrif á þá þjónustu sem viðskiptavinum er veitt. Starfsánægja er meginatriði þessarar ritgerðar. Rannsóknarspurningarnar voru: Í hverju fólust skipulagsbreytingarnar hjá HMS haustið 2021? Hvaða áhrif höfðu skipulagsbreytingar á starfsánægju? Ástæða þess að ákveðið var að taka þennan vinkil var sú að skipulagsbreytingarnar vöktu áhuga minn á að skoða þær nánar, bæði út frá starfsánægju en einnig til að fá meiri innsýn í breytingarnar sjálfar. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við fjóra starfsmenn stofnunarinnar. Önnur rannsóknaraðferðin var greining fyrirliggjandi gagna sem fjölluðu um skipulagið á stofnuninni fyrir og eftir breytingar. Til að fá nánari upplýsingar um breytingarnar voru tekin viðtöl við forstjóra og þjónustu- og breytingastjóra stofnunarinnar. Rannsóknin leiddi það í ljós að starfsánægja eins af fjórum þátttakendum batnaði með skipulagsbreytingunum. Hjá hinum þremur breyttist hún ekki, en af þeim líður tveimur vel í vinnunni og einum þokkalega. Lykilorðin eru: Breytingastjórnun, skipulagsbreytingar, skipulag, starfsánægja og frammistaða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Róbert Smári Gunnarsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44989
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44989

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Róbert Smári Gunnarsson 2000-. Skipulagsbreytingar hjá HMS : áhrif á starfsánægju. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44989