Back to search

Hólar University College

Matarsóun í ferðaþjónustu : leiðir til þess að takmarka matarsóun í ferðaþjónustu og helstu áskoranir

Abstract

dc:description.abstract

Matarsóun er vandamál sem heldur áfram að vaxa með aukinni neyslu og áherslubreytingum þegar kemur að fæðuvali. Þegar matvælum er sóað er er öllum auðlindum sem notaðar eru í framleiðslu matvæla sóað. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru sautján talsins og snúa að þeim þáttum sem talið er mikilvægast að vinna að í tengslum við aukna losun gróðurhúsalofttegunda. Evrópusambandið hefur sett reglur um mælingar vegna sóunar sem verið er að fara í hér á landi á þessu ári. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út aðgerðaáætlun þar sem tillögur til úrbóta eru kynntar en ekki komnar langt á veg og ljóst er að betur má gera. Í ljósi þess að ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein á Íslandi er mikilvægt að skoða matarsóun innan hennar. Í þessari rannsókn var notast við eigindlega aðferðarfræði þar sem fyrirliggjandi gögn voru skoðuð og tekin voru hálf opin viðtöl við forsvarsmenn fimm ferðaþjónustufyrirtækja á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýndu fram á að fyrirtækin deila að miklu leyti aðgerðum og áskorunum. Aðgerðir eru tengdar innkaupum og yfirsýn og áskoranir helst tengdar viðhorfi starfsfólks og viðskiptavina. Aðgerðir sem hér eru nefndar geta nýst fyrirtækjum sem hafa ekki hugað að matarsóun í sinni starfsemi. Ljóst er að þörf er á aðgerðum sem snúa að frekari þátttöku í því verkefni sem takmörkun matarsóunar er. Lykilorð: matarsóun, sjálfbærni, stjórnun sóunar, ferðaþjónusta, heimsmarkmið

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Sif Guðmundsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44988
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44988

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Sif Guðmundsdóttir 1990-. Matarsóun í ferðaþjónustu : leiðir til þess að takmarka matarsóun í ferðaþjónustu og helstu áskoranir. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44988