Back to search

Hólar University College

Nýliðaþjáfun í gestamóttöku : hvernig er best að standa að nýliðaþjálfun í gestamóttöku á hóteli?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi skýrsla fjallar um verknám sem nemandi á braut stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta við ferðamáladeild Háskólans á Hólum tók á hóteli í miðbæ Reykjavíkur, Canopy Hilton. Aðaláhersla verknámsins var nýliðaþjálfun í gestamóttöku. Til að fá að kynnast almennilega nýliðaþjálfun hótelsins voru vaktir teknar á bæði dagvöktum og næturvöktum og fengin kynning frá mannauðsstjóra um nýliðamóttökuna. Þar sem ég hefði starfað áður á þessu hóteli þá fékk ég það verkefni að þjálfa nýliða með þeim gögnum sem hótelið reynir að styðjast við þegar nýliðaþjálfun þarf að eiga sér stað. Á meðan verknámi stóð vaknaði upp sá áhugi að gera eigindlega rannsókn út frá verknáminu til að fá betri skilning á því hvernig gæti verið best að standa að nýliðaþjálfun í gestamóttöku. Var ákveðið að taka viðtöl við starfsfólk Canopy og fá þeirra upplifun af nýliðaþjálfun við hótelið. Í skýrslunni mun vera fræðileg umfjöllun um þau helstu hugtök sem tengist viðfangsefninu. Það verður greint frá verknámsferlinu, þar sem verið er að kafa eftir svari hvernig best sé að standa að nýliðaþjálfun. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að um óhefðbundin nýliðaþjálfun sé að ræða á Canopy. Þær sýna einnig að vel skipulögð nýliðaþjálfun mun mjög líklega hvetja starfsmenn til þess að vilja vera lengur hjá fyrirtæki þar sem vel skipulögð nýliðaþjálfun getur aukið starfsánægju starfsmanns.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ástrós Pálmadóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44981
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44981

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ástrós Pálmadóttir 1996-. Nýliðaþjáfun í gestamóttöku : hvernig er best að standa að nýliðaþjálfun í gestamóttöku á hóteli?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44981